Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sex gistu fangaklefa á sjötta tímanum í morgun.
Í Árbæ var einstaklingur handtekinn vegna hótana og vistaður í fangaklefa. Sá er sagður hafa verið í annarlegu ástandi vegna áfengisneyslu.
Bifreið var ekið út af vegi í miðbæ Hafnarfjarðar og reyndist ökumaður óslasaður, að sögn lögreglu. Hann hafi verið undir áhrifum áfengis og vistaður í fangaklefa. Þá var annar ökumaður stöðvaður í Breiðholti grunaður um akstur undir áhrifum lyfja og fíkniefna.
Einnig var tilkynnt um hávaða vegna skemmtanahalds í heimahúsi í Breiðholti. Var húseiganda gert að lækka, sem hann gerði, að sögn lögreglu.
Upptalning mála er ekki tæmandi þar sem 73 mál voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 17 til 5 í morgun, að því er fram kemur í tilkynningu. Venju samkvæmt gerir lögregla ekki grein fyrir öllum þeirra.