Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu þar sem viðvaranir eru í gildi. Búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum á Norðurlandi í kvöld. Þetta skrifar veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Gul viðvörun tekur gildi á Norðurlandi eystra klukkan 22 í kvöld, Suðausturlandi klukkan 19, miðhálendi klukkan 20, og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 22.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðaustan 8 til 15 metrar á sekúndu og víða skúrir eða él en úrkomulítið norðantil. Vaxandi austanátt undir hádegi, fyrst suðaustanlands með rigningu eða slyddu en snjókomu til fjalla. Austan og suðaustan 15 til 23 metrar á sekúndu í kvöld en yfirleitt hægari vestantil.
Sunnan og suðaustan 18 til 25 metrar á sekúndu með snjókomu eða skafrenningi á Norðurlandi seint í kvöld, hvassast á Tröllaskaga en annars víða suðlæg átt, 8 til 15 metrar á sekúndu og skúrir eða slydduél. Hiti 0 til 6 stig.
Suðaustlæg átt 5 til 10 metrar á sekúndu á morgun og víða skúrir eða slydduél en 10 til 15 á Norðvesturlandi fram undir hádegi. Hiti um og undir frostmarki.
Lægð og eldingar
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að sunnanátt og éljagangur hafi verið í gær og í nótt og nokkrar eldingar mælst í því veðri. Ekki sé óalgengt að eldingar myndist í svona óstöðugu lofti.
„Lægð nálgast nú landið úr suðri og eftir því sem hún nálgast byrjar að hvessa suðaustanlands með rigningu eða slyddu. Síðdegis er útlit fyrir að lægðarmiðjan verði við suðurströndina og orðið hvasst sunnan og austantil og víða rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Þegar líður á kvöldið færist lægðarmiðjan yfir landið vestanvert og snýst þá í suðlægari átt austantil og í kvöld má búast við sunnanhríð á norðanverðu landinu, hvassast á Tröllaskaga. Gefnar hafa verið úr gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar.“
Hann bætir við að lægðin fjarlægist svo til norðvesturs í nótt. Þá dragi úr vindi og skúrir eða slydduél myndist á eftir lægðinni. Búast megi við fremur hægri suðaustlægri átt á morgun með skúrum eða slydduéljum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 5-10 m/s og skúrir eða él, en sunnan og suðvestan 10-18 norðvestantil fyrir hádegi með rigningu eða slyddu. Úrkomulítið norðanlands. Hiti nálægt frostmarki.
Á mánudag: Hæg austlæg eða breytileg átt og él eða slydduél sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins.
Á þriðjudag (fullveldisdagurinn): Norðlæg eða breytileg átt 5-10 og slydda eða snjókoma, en úrkomuminna norðvestantil. Vaxandi norðvestanátt og snjókoma norðantil um kvöldið, en styttir upp sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag: Snýst í ákveðna suðvestanátt með dálitlum éljum, en þurrt suðaustanlands. Hlýnar heldur um kvöldið.
Á fimmtudag: Líkur á suðlægri átt með rigningu og hlýnandi veðri, en þurrt að kalla norðaustantil.
Á föstudag: Útlit fyrir suðvestan átt með skúrum eða slydduéljum.