26 afar sjaldgæfar skjaldbökur fundust í innrituðum farangri ferðamanns sem var á leið í gegnum Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam í dag. Maðurinn var á ferðalagi frá Mexíkó til Hong Kong. Flestar skjaldbökurnar fundust í kassa með leikfangabíl en hinar voru í lokuðum sokk ofan í ferðatösku.
Skjaldbökurnar eru af tegund sem uppgötvaðist árið 2018 í Puerto Vallarta í Mexíkó og fékk vísindanafnið Kinosternon vogti. Skjaldbakan er agnarsmá, aðeins um tíu sentimetrar að lengd, og telst því til minnstu ferskvatnsskjaldbaka í heimi.
Tegundin er í bráðri útrýmingarhættu. Áætlað er að aðeins um þrjú hundruð dýr séu til, þar af hefur aðeins eitt þekkt kvendýr fundist. Þá hafa náttúruleg búsvæði skjaldbökunnar öll verið eyðilögð. Árið 2023 klöktust þó allra fyrstu skjaldbökuungarnir út í umsjá manna.
Vegna þess hve sjaldgæf skjaldbakan er getur eitt dýr selst á allt að tíu þúsund bandaríkjadali, eða hátt í 1,3 milljónir íslenskra króna.
Arðbært smygl
Þetta er ekki í fyrsta skiptið á þessu ári þar sem tilraunir hafa verið gerðar til að smygla lifandi skjaldbökum til Hong Kong.
Í október greindu þarlend yfirvöld frá því að tollverðir hefðu lagt hald á átta skjaldbökur sem taldar eru vera í útrýmingarhættu. Áætlað markaðsvirði dýranna var um 54 þúsund dalir, sem er jafnvirði um 6,6 milljóna íslenskra króna.
Þremur mánuðum áður komu tollverðir í Hong Kong upp um tvö aðskilin smyglmál þar sem lagt var hald á samtals 42 lifandi skjaldbökur. Þær hefðu selst fyrir svimandi fjárhæðir en áætlað markaðsvirði þeirra nam samtals 210 þúsund dölum. Eitt dýr hefði með öðrum orðum fengist fyrir meira en 26 milljónir íslenskra króna.