Þetta kemur fram í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ þar sem blómlegar sveitir í Húnabyggð eru heimsóttar. Þar er Þing beint framhald Vatnsdals með hið forna höfuðból Þingeyrar.
Á bænum Hnjúki sjáum við Sigurð Rúnar Magnússon brjóta nýtt land til ræktunar til að þjóna stækkandi kúabúi. Hann og Maríanna Gestsdóttir hafa endurbyggt fjós og fjárhús, breytt básafjósi í tæknivætt lausagöngufjós og tvöfaldað kúafjöldann.
Á bænum Kornsá hafa þau Harpa Birgisdóttir og Birgir Þór Haraldsson byggt upp nýja kynslóð fjárhúsa. Þau tóku við 450 kinda búi af foreldrum hennar árið 2017, hafa stækkað búið upp í 800 vetrarfóðraðar kindur og stefna á fleiri enda komin með húspláss fyrir um 900 kindur.
Á bænum Steinnesi í Þingi komu þau Jón Árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttir inn í búskapinn með foreldrum hans fyrir áratug. Þar er 800 kinda bú en einnig nýleg reiðhöll. Þar er markmiðið að rækta kynbótahross sem og góð reiðhross og keppnishross
Bændurnir á landnámsjörðinni Hofi segja mikinn metnað meðal Vatnsdælinga gagnvart landbúnaði.
„Já, og fullt af fólki sem hefur mikinn áhuga á að byggja upp búið sitt,“ segir Eline Manon Schrijver, sem ólst upp í Hollandi.
„Mjög mikill búskapar- og ræktunaráhugi í bæði jarðrækt, sem er náttúrulega grundvöllurinn að öllum búskap, og svo bara sauðfjárrækt og hrossarækt,“ segir Jón Gíslason á Hofi.
Hér má heyra húnvetnska bændur lýsa kynbótastarfinu í sjö mínútna kafla úr þættinum:
Þátturinn um Vatnsdal og Þing var frumsýndur síðastliðinn miðvikudag. Hann verður endursýndur á Sýn+ á morgun, sunnudag, klukkan 13:00. Þáttinn í heild sem og þáttaröðina alla má nálgast hvenær sem er á streymisveitu Sýnar.