„Svo sé ég bátsmanninn hlaupa upp í brú. Ég fylgi honum og sem betur fer gerði ég það af því ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ sagði Ásgeir Elí Gerðarsson í viðtali við fréttamann Vísis en skömmu áður hafði mikill sjór flætt inn um lúgu stjórnborðsmegin á skipinu, dælur um borð hafi ekki virkað almennilega og því hafi allt verið á floti þegar Ásgeir fór og kannaði stöðuna.
Flotgallarnir kláruðust
Hann hafi áttað sig nánast um leið á því að bátsmaðurinn og aðrir væru að tæma flotgalla úr skáp og hlaupa þaðan inn í brú. Hann hafi þegar í stað farið að aðstoða þá við að rétta næsta manni flotgalla. Það liðu innan við tuttugu mínútur frá því að neyðarboð um leka barst frá skipstjóra Jökuls ÞH þangað til hann tilkynnti að skipið væri á leiðinni niður og skipverjar væru að yfirgefa það.
„Ég tek alltaf bara galla og ég dæli þeim bara í næsta mann. Við erum síðan þrír eftir sem eru ekki komnir með flotgalla og flotgallarnir eru búnir þarna þannig að við förum að leita upp í brú að aukagöllum,“ sagði Ásgeir og lýsti því að þar hefðu svo aðeins fundist þrír æfingagallar, en ekki „almennilegir flotgallar“.
„Við klæðum okkur í þá og stuttu síðar voru menn bara komnir út í sjó,“ sagði hann en hann sagði æfingagallana verri en hina, meðal annars hvað það varðar að á þeim er ekkert ljós, hann sjálfur og hinir tveir sem voru í eins galla hafi verið gegnblautir í sjónum. Þrátt fyrir að tveir björgunarbátar hafi átt að vera til taks á skipinu endaði áhöfnin öll úti í sjónum.
Endaði einn í sjónum
„Áður en ég næ að festa mig við næsta mann kemur stór alda. Þetta er níu manna hópur sem ég var í og þeir fara allir út í, átta saman,“ segir Ásgeir og lýsir því að hann hafi endað einn nokkuð fjarri hópnum.
„Ég þarf að synda til hópsins og það tók einhverjar fimm til tíu mínútur.“
Það séu lásar á göllunum sem eru hugsaðir svo að hægt sé að hífa fólk upp á æfingum en í staðinn nýttu þeir lásana til þess að binda sig saman og hefur fólk sem starfaði við björgunina síðar talað um að þessi ákvörðun skipverjanna hafi skipt sköpum.
„Í staðinn fyrir að nota þá fyrir kranann þá bara bindum við næsta mann, bara festum okkur,“ sagði hann.
Í viðtalinu sagði Ásgeir einnig frá því að hann hefði verið í níu manna hóp úti í sjónum, en tveir úr þeim hópi létust og hann var síðasti maðurinn á lífi sem var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.