Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, var til tals í Reykjavík síðdegis þar sem hann ræddi nýkynnt áform ríkisstjórnarinnar um að fá fjórðu þyrluna í flugflota Landhelgisgæslunnar.
Njáll, sem er fyrrverandi flugumferðarstjóri, kvaðst gleðjast yfir tíðindunum að ný þyrla skyldi fengin en vottaði jafnframt aðstandendum þeirra sjómanna sem létust þegar Jökull ÞH 299 sökk sína dýpstu samúð.
Njáll sagði að mikilvægt væri að fá fjórðu þyrluna inn. „Hingað til hef ég ekki talað um fimmtu þyrluna en það er eitthvað sem við munum þurfa að tala um á næstu árum,“ sagði hann.
Jens Þór Sigurðarson, flugstjóri um borð í TF-GRÓ, minntist á það í viðtali við Vísi í gær að þörf væri á fimm þyrlum til þess að halda tveimur úti hverju sinni.
Njáll nefndi að þegar varnarlið Bandaríkjahers var á Íslandi fram til ársins 2006 hafi það haft sex stórar björgunarþyrlur. „Og við höfum aldrei náð aftur þeirri getu í tuttugu ár uppi á Íslandi,“ sagði hann.
„Við eigum að stefna að fimm þyrlum,“ bætti hann við. Njáll hefur áður talað fyrir því að þyrla verði keypt og staðsett á Akureyri. Eðlilegast væri að setja nýtt skýli upp á nýju flughlaði á Akureyrarflugvelli.
Til þess að það yrði hægt þyrfti að fergja lóðina og síga landið í 12–16 mánuði. Svo væri hægt að byggja flugskýli þar ofan á. Það taki skamman tíma, en erfiðara sé að útvega stóra björgunarþyrlu.
„Það er gríðarleg eftirspurn í heiminum út af stríðsrekstri,“ sagði Njáll. Æskilegast væri að nýju þyrlurnar yrðu af sömu tegund og þyrlurnar sem þegar eru í flota gæslunnar: TF-SIF, -GRÓ og -GNÁ. Þær eru allar af tegundinni Super Puma.
„En ég þykist vita að það að þær eru ekki margar til í heiminum sem væri hægt að nálgast,“ segir hann. Það sé töluvert langur biðlisti.
Skoða þurfi möguleikana í samstarfi við aðrar NATO-þjóðir. Njáll býst við því að NATO-þjóðir sjái not í því að styrkja viðbragðsgetu í Atlantshafinu.
„Við Íslendingar erum að stýra björgun á svæði sem er 1,7 milljónir ferkílómetrar. Sautján sinnum stærra en Ísland,“ segir hann.
Njáll telur að slíkan kostnað mætti bókfæra undir þau 1,5 prósent af vergri landsframleiðslu sem Ísland þarf að verja í varna- og öryggistengd útgjöld samkvæmt kröfum NATO.
Eins og staðan er í dag eru allar vélar Landhelgisgæslunnar leigðar, að sögn Njáls. Njáll segir að hefja þurfi vinnu við það að ákveða hvað gera skuli þegar leigusamningurinn rennur út 2032.
Þingmaðurinn metur að þörf verði á tveimur þyrluáhöfnum á Akureyri ef þyrlan á að vera þar. Hann nefnir að tveir flugstjórar gæslunnar búi í Eyjafirði en sömuleiðis yrði þörf á sigmönnum og læknum sem byggi upp áhöfn gæslunnar.