Ásakanir um ofbeldi gegn sjúklingum á geðheilbrigðisstofnunum hafa skekið Króatíu og mikil reiði hefur gripið um sig í landinu. Upptökin má rekja til þess þegar sjúklingur lést í síðasta mánuði eftir að starfsfólk spítalans í Zagreb þar sem hann var lagður inn barði hann og kæfði.
Maðurinn hét Kristian Josip Periš og sjö hjúkrunarfræðingar og læknir hafa verið handteknir í tengslum við dauða hans.
Borin voru kennsl á þau í myndböndum úr eftirlitsmyndavél sem var lekið þar sem starfsfólkið sést kýla Periš í bringuna og halda púða fyrir vitum hans. Periš sést gera tilraunir til að berjast um en hann getur lítið hreyft sig þar sem hann er fjötraður við sjúkrarúmið.
Fleiri lýsa sömu upplifun
Eftir að myndbandið komst í dreifingu steig maður fram undir nafnleynd sem hafði áður verið á sama sjúkrahúsi og Periš. Hann sagði frá því í samtali við AFP-fréttaveituna að hann hefði upplifað svipaða meðferð þar sem hann var kýldur í gegnum kodda á meðan hann var bundinn við rúmið.
Hann hafi lent í fleiri atvikum þar sem hann var beittur ofbeldi og honum var tjáð að ef hann reyndi að tilkynna meðferðina myndi hans bíða frekari misþyrmingar. AFP hefur þó sett þann fyrirvara við frásögn mannsins að hún hefur ekki verið endanlega staðfest.
Dušan Miljuš, þekktur króatískur rannsóknarblaðamaður, sagði hins vegar við AFP að eftir að mál Periš komst í hámæli hefðu margir fyrrverandi sjúklingar á geðheilbrigðisstofnunum og aðstandendur þeirra haft samband við hann.
„Á þeim 40 árum sem ég hef fjallað um glæpi hef ég sjaldan séð neitt jafn hryllilegt,“ sagði Miljuš enn fremur.
Gabrijela Stanic er ein þeirra sem hafa sagt sögu sína eftir andlát Periš en hún var lögð inn á sama sjúkrahús eftir að sonur hennar féll frá. Samkvæmt Stanic batt starfsfólkið hana við rúm og neitaði henni um vatn þar til hún hætti að gráta. Hún hafi ekki sjálf getað teygt sig í vatnið því hún hafi verið bundin föst.
Mótmælt síðustu tvær helgar
Samkvæmt skýrslu frá árinu 2023 sem unnin var af Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum var miklum áhyggjum lýst yfir vegna þess hve þvingunarráðstöfunum væri beitt óhóflega, oft og óréttlætanlega lengi á geðheilbrigðisstofnunum í Króatíu. Þá hafa mannréttindasamtök lengi varað við þessu vandamáli.
Nákvæm dánarorsök Periš hefur ekki verið staðfest en Króatar hafa engu að síður mótmælt tvær helgar í röð og krafist breytinga. Forstjóri sjúkrahússins og flestir stjórnarmenn þess hafa sagt af sér og mikil umræða á sér nú stað um geðheilbrigðisúrræði í landinu.