Við köllum þetta oft „hvíta lygi“.
Réttlætum að þetta sé svo saklaust. Ekki beint lygi.
Að segja ósatt er samt lygi.
Dæmi:
„Er rétt ókominn“
– þegar við erum enn að leita að lyklunum heima.
Útskýrum hvers vegna við komumst ekki eða slepptum einhverju með því að segja ósatt: Kennum því jafnvel upp á börnin okkar eða foreldra eða eitthvað.
Þekktast auðvitað að fólk spyrji okkur hvað sé að frétta – þegar okkur líður ömurlega – og við svörum:
Bara allt gott!
Fleiri dæmi:
Við erum í matarboði og okkur finnst kjúklingurinn heldur þurr og frekar bragðlaus sem réttur. Gestgjafinn spyr: Er þetta ekki bara ágætt hjá mér?
Og við svörum: Jú, æðislegt!
Einhver segir við okkur: „Ég fann þennan jakka á útsölu, hvernig líst þér á?“ Þá svörum við:
„Hann er bara geggjaður!“
– jafnvel þótt okkur finnist það bara alls ekki.
Eða þetta dæmi:
Einhver segir við okkur: „Við verðum að fara að hittast í kaffi fljótlega!“
Og við svörum: „Já, algjörlega, verðum í bandi!“
– en erum svo innilega ekki að meina það!
Útskýringin
Rannsókn frá Virginíu-háskóla í Bandaríkjunum sýnir hins vegar að svona lygar eru einfaldlega hluti af daglegu lífi hjá flestum.
Sko…
Í rannsókninni héldu 147 þátttakendur dagbók í viku og skráðu hvert einasta skipti sem þeir sögðu ósatt.
Niðurstaðan? Háskólanemarnir lugu að meðaltali tvisvar á dag og almenningur einu sinni á dag.
Með öðrum orðum: Það var logið í einu af hverjum fimm samtölum.
Það merkilegasta er hins vegar: Hvers vegna var verið að ljúga?
Því flestar lygarnar snerust bara um að særa ekki einhvern, forðast vandræðalegar stundir eða halda friðinn.
Það sem réttlætir þessar hvítu lygar því aðeins er að félagslega og í samskiptum, gæti heilmikill tími farið í særindi og útskýringar, ef allir sagðu alltaf nákvæmlega það sem þeir hugsuðu.
Eitt þarf þó að hafa í huga. Þótt hvítar lygar geti liðkað fyrir samskiptum geta þær líka orðið vani sem grefur undan trausti – sérstaklega við okkar nánustu. Ef við segjum alltaf að „allt sé í fínu lagi“ þegar svo er ekki, fær hinn aðilinn aldrei tækifæri til að kynnast því hvernig okkur líður í alvöru.
Þrenn góð ráð
1. Taktu sjálfvirknina af. Næst þegar einhver spyr „hvernig hefurðu það?“ staldraðu við í eina sekúndu áður en þú segir bara „allt fínt“.
2. Veltu fyrir þér hvers vegna þú ert að ljúga. Er það til að hlífa tilfinningum annarra – eða ertu bara að reyna að sleppa við óþægilegt samtal?
3. Færðu þig nær sannleikanum. Það þarf ekki að velja á milli þess að ljúga eða segja allt. Það er líka hægt að svara öðruvísi. Dæmi:
Einhver segir við okkur: „Við verðum að fara að hittast í kaffi fljótlega!“
Og við svörum: „Það mætti hugsanlega skoða það“ – sem þýðir að við lofum því ekki en hljómum samt jákvæð gagnvart hitting
Helgarverkefnið
Taktu eftir því um helgina hversu oft þú segir eitthvað sem er ekki alveg 100% satt – bara til að vera kurteis eða liðka fyrir. Prófaðu í einu tilviki að segja frekar satt á mildan hátt. Sjáðu svo hvað gerist.
Helgarverkefnið
Taktu eftir því um helgina hversu oft þú segir eitthvað sem er ekki alveg 100% satt – bara til að vera kurteis eða liðka fyrir. Prófaðu í einu tilviki að segja frekar satt á mildan hátt. Sjáðu svo hvað gerist.