Tveir starfsmenn á heilsugæslustöð á Gaza voru í dag drepnir í árás Ísraelshers. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Læknar án landamæra. Ísraelsher segir árásirnar hafa beinst að „hryðjuverkamönnum Hamas“.
Mennirnir voru öryggisverðir á heilsugæslunni en ísraelski herinn segir að samkvæmt þeirra greiningu hafi mennirnir verið yfirmenn stórskotaliðssveitar Hamas, þeir Moaz Yousef Alitsbach og Ahmed Sufyan Muhammad Ali Abu.
Læknar án landamæra segjast vera „eyðilagðir“ yfir morðunum og fordæma beina árás Ísraels á samtökin. Húsnæðið hafi verið greinilega merkt samtökunum og staðsetning þess hafi verið tilkynnt til ísraelska hersins.