Meðal þess sem kom til kasta lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var par með barn meðferðis.Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í Laugardalshverfi í Reykjavík hafi par, í mjög annarlegu ástandi sökum ölvunar, sem var í hávaðarifrildi og með barn meðferðis verið handtekið. Parið var vistað í fangaklefa en ekki er tekið fram hvort það hafi verið látið deila klefa. Barninu var komið í umsjón barnaverndar.Í miðborginni var aðili handtekinn vegna líkamsárásar og vistaður i fangaklefa.
Par með barn handtekið