"Ég er Evrópubúi, Dani og Álaborgari. Og ég er heldur ekki fylgjandi mikillar umskiptingar landsmanna," (d: tilhænger af en stor befolkningsudskiftning) sagði Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur í hlaðvarpsviðtali í vikunni.
Hún lét ekki þar við sitja heldur sagðist vilja það sem hún kallaði "sterka meirihlutamenningu" og að "við" - það er að segja Danir - væru "danskt samfélag, og við erum upprunalegur kynstofn, sem er danskur að þjóðerni" (d: Vi er en oprindelig stamme, der er etnisk dansk.)
Þessi orð, sem hún lét falla í viðtali sem snerist einkum um þau áform Dana og fjögurra annarra Evrópusambandsríkja að senda hælisleiteitendur sem synjað hefur verið um hæli til Rúanda í Afríku, hafa vakið mikla athygli, harða gagnrýni á vinstri væng stjórnmálanna en þeim mun meiri ánægju því utar á hægri væng þeirra sem leitað er.
Bergmálar samsæriskenningu öfgahægrisins og úreltar hugmyndir um kynþætti
Það er einkum tvennt sem þarna vekur athygli og ýmist gagnrýni eða fögnuð. Annars vegar „umskiptin miklu“ (e: the great replacement) og hins vegar tal hennar um að Danir séu upprunalegur kynstofn, sem sé danskur að þjóðerni. Hvort tveggja er sótt beint í orðræðu rasista og þjóðernissinna yst á hægri væng stjórnmálanna. Þetta eru auðvitað ekki bara orð, heldur orð forsætisráðherra og hafa þar með ákveðna merkingu og vægi.
En hvað finnst fólki helst athugavert við þetta? Spegillinn leitaði svara við því og fleiri áleitnum spurningum sem vaknað hafa við ummæli Frederiksen hjá Kristínu Loftsdóttur, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Hlusta má á þá umfjöllun með því að smella á þennan hlekk, eða lengri útgáfu af henni og viðtalinu við Kristínu með því að smella á spilarann hér að neðan.
Ekkert til sem heitir upprunalegur danskur kynstofn
Fyrsta spurning er einföld: Er til eitthvað sem kalla má upprunalegan, danskan kynstofn?
Og svar Kristínar er afdráttarlaust: „Nei. Það er ekki til." Hún segir dapurlegt að Frederiksen skuli grípa til þessarar orðræðu, sem beri „sterkan keim af hugmyndum nítjándu aldar fólks, þar sem var litið þannig á að það væri til eitthvað sem héti kynþáttur, og kynþáttur og menning fylgdust að og það væri hægt að alhæfa eitthvað um ákveðna menningu út frá þessum forsendum."
Kristín minnir á að þjóðríki séu tiltölulega nýleg uppfinning og það, hverjir tilheyri dönsku þjóðinni hafi líka tekið miklum breytingum í gegnum tíðina. Danir, eins og allar aðrar þóðir, er nefnilega margsamsett og blönduð þjóð langt aftur í aldir.
Umskiptin miklu: Hættuleg samsæriskenning sem kostað hefur fjölda mannslífa
Samsæriskenninguna um meinta leyniáætlun um að skipta hinum hvíta kynstofni út fyrir dekkri innflytjendur, sem streyma inn í hrönnum og fjölga sér svo í framhaldinu langt umfram það sem hvíta heimafólkið gerir segir hún beinlínis hættulega.
„Þetta snýst bara einfaldlega um rasisma,“ segir Kristín. Hún bendir á að fólk eigi það til að túlka þessa samsæriskenningu sem ákall um að gera eitthvað í málinu og hún hafi þannig verið drifkraftur skelfilegra illvirkja, eins og dæmin sanna. Þar er skemmst að minnast fjöldamorðanna í Osló og Útey í Noregi 2011.
Það sé því dapurlegt að heyra þjóðarleiðtoga bergmála slíka kenningu, sem byggi á forsendum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Hins vegar fái málefni innflytjenda svo miklu meira rými í fjölmiðlum en efni standa til, og stjórnmálafólk notfæri sér það óspart.
Hlusta má á lengri útgáfu af viðtalinu við Kristínu í spilaranum hér að neðan.