Spánverjar kjósa sér nýtt þing í dag en á því sitja 350 þingmenn. Því þarf 176 til að mynda meirihluta. Kjörstöðum á meginlandi Spánar var lokað klukkan 19 að íslenskum tíma en síðustu kjörstaðir á Kanaríeyjum lokuðu klukkan 20.
Engin skoðanakönnun hefur verið birt síðan á mánudag og engar útgönguspár liggja fyrir.
Aftur á móti birti spænska ríkissjónvarpið TVE í kvöld niðurstöður könnunar Sigma Dos þar sem 19.500 kjósendur voru spurðir. Könnuninni lauk í gær.
Könnun Sigma Dos bendir til þess að íhaldsmenn í spænska Lýðflokknum fái um 32 prósent atkvæða, um 129 til 134 þingsæti.
Það væri vissulega fækkun frá síðustu kosningum 2023 en gæti enn dugað til þess að mynda meirihluta með fjarhægrimönnum úr Vox með 16,2 prósent, eða um 44-48 þingsæti.
Sósíalistaflokkur Pedro Sánchez forsætisráðherra mælist með 28,8 prósenta fylgi í könnuninni, sem nemur um 119-124 þingsætum. Þá er ekki útlit fyrir að flokkurinn geti myndað stjórn með bandamönnum sínum úr Frente Amplio, sem er aðeins spáð 10-11 sætum. Samkvæmt könnuninni er svo gott sem útilokað að Sanchez og félagar geti myndað meirihluta, að sögn TVE.
Sánchez forsætisráðherra boðaði til kosninga átta mánuðum fyrr en áætlað var eftir að spænska þingið hafnaði breytingum á húsnæðislöggjöf landsins.