Í minnisblaði Akureyrarbæjar um eignasafn bæjarins á félagslegum leiguíbúðum segir að það sé frekar gamalt og fylgi ekki þróun og vexti bæjarins. Heildarendurnýjun þurfti á 11 íbúðum af 25, sem skilað hefur verið úr leigu á árinu, vegna slæmrar umgengni íbúa.
„Það koma upp alls konar mál í samfélaginu okkar, fólk í viðkvæmri stöðu – veikt fólk sem er í þessum íbúðum að einhverju leyti og þó að ég geti ekki farið út í einstaka mál eða hvernig hvert og eitt er, þá virðist þetta vera að aukast, að það eru þyngri mál í kerfinu og þegar slíkir einstaklingar eru að flytja fylgir oft kostnaður. Það er bara eitthvað sem fylgir því,“ segir Óðinn Svan Óðinsson, formaður bæjarráðs á Akureyri.
Taka allar eignir í Hrísey og Grímsey út úr kerfinu
Til stendur að endurnýja íbúðir í félagslega kerfinu en margar þeirra eru óhentugar. Einnig á að taka allar eignir í Hrísey og Grímsey út úr kerfinu. Stefnt er að því að selja 15 eignir og kaupa nýjar.
„Það hefur verið frekari köllun eftir tveggja herbergja íbúðum. Eins og kom fram þá er þetta líka í lyftulausum gömlum blokkum og dreifingin um bæinn, þær eru margar á litlu svæði. Við þurfum að fara að skoða þetta – hvernig við ætlum að dreifa þessum félagslegu íbúðum um bæinn okkar betur – og fara í nýrra húsnæði,“ segir Óðinn.
Markmiðið með sölu á eldri eignum og kaup á nýjum er að koma til móts við þá sem eru á biðlista, en bið eftir tveggja herbergja íbúðum hefur lengst á meðan lítil bið er eftir stærri íbúðum.
Þá er ráðgert að dreifa félagslegum íbúðum betur um bæinn, langflestar eru í Síðuhverfi, eða 86 talsins, á meðan aðeins ein er í nýjustu hverfum bæjarins.