Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, var heldur betur kát þegar fréttastofa RÚV ræddi við hana eftir að fyrstu tölur bárust úr sveitarfélaginu en samkvæmt þeim er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta. Hún nýtti tækifærið og skaut föstum skotum á forsætisráðherra.
„Ég er auðvitað bara stolt og meyr yfir þessum tölum. Þetta er sá meðbyr sem við erum búin að vera að finna í baráttunni okkar og þetta er auðvitað bara gríðarlega ánægjulegt og auðvitað risaáfangi en þetta eru fyrstu tölur og við verðum auðvitað að vera með varnagla á því. En þá verð ég bara að segja að ég held að þetta sé líka bara vísbending sem við erum að sjá, bæði Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu og líka vísbending um það sem við erum að fara að sjá í borginni og það er auðvitað bara frábært að meirihlutinn hér og við erum auðvitað bara með, miðað við þessar tölur, hreinan meirihluta og meirihlutinn heldur en forsætisráðherra heldur betur einsetti sér að fella meirihlutann í Kópavogi, það tókst ekki. Og við erum afskaplega ánægð hér yfir þessum niðurstöðum og ég vona svo sannarlega að þetta sé það sem koma skal. Þetta er sannarlega það sem við höfum verið að finna í okkar baráttu.“
Ásdís telur að mestu máli hafi skipt að núverandi meirihluti hafi látið verkin tala á síðasta kjörtímabili, kjósendur viti fyrir hvað flokkur hennar stendur, fólki líði vel í Kópavogi, Kópavogsbúar séu stoltir og vilji halda áfram á þessari braut. Að sjálfsögðu nýtti Ásdís líka tækifærið og minnti á að: Það er gott að búa í Kópavogi.
Ásdís hefur verið gagnrýnin í garð forsætisráðherra fyrir afskipti hennar af kosningabaráttunni í Kópavogi en Kristrún gagnrýndi bæjarstjórnina meðal annars fyrir há leikskólagjöld og fyrir að hafa ekki úthlutað lóð til húsnæðisfélagsins Bjargs í ræðu sinni á fundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík á verkalýðsdaginn.