Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Össur Skarphéðinsson, sem er einn stofnenda og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir í færslu á Facebook að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eigi ekki erindi í stól borgarstjóra Reykjavíkur. 

Byggir hann það á því að Hildur hafi kallað Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, „súkkulaðikleinu“ í viðtali. Sumum þykir Össur teygja sig heldur langt í ásökunum og segja skammarlegt að saka fólk sem maður sé ósammála í pólitík um rasisma að ósekju.

Orð Össurar, hafa hleypt af stað miklum deilum um hugtakið súkkulaðikleinu og rasisma og keppast þjóðþekktir Íslendingar og stjórnmálafólk við að leggja orð í belg á Facebook-síðu hans.

Fái að vera súkkulaðikleina í umræðunni

Það var í hlaðvarpinu Þjóðmálum sem Hildur lét þau orð falla að vinstri flokkar væru að lofa fólki öllu fögru og leggja fram áætlanir sem ómögulegt væri fyrir þá að standa við.

„Einmitt bara Sanna, sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni, sem boðar hérna stórkostlega uppbyggingu á félagslegu húsnæði með aukinni skuldsetningu Félagsbústaða og ber það saman við einhver fasteignafélög á markaði og ætlar að ljúga því að fólki að það verði einhver hagstæð leiga. Þetta er bara della,“ sagði Hildur.

Ummælin úr Þjóðmálum má sjá hér að neðan.

Þessi ummæli virðast hafa farið fyrir brjóstið á Össuri sem stakk niður penna.

„Ég er kannski viðkvæmari fyrir því en aðrir þegar konur með brúna húð eru uppnefndar „súkkulaðikleinur“. Mér fannst þetta að minnsta kosti síðasta sort hjá Hildi og leyfi mér að efast stórlega um að hún eigi erindi í stól borgarstjóra. I rest my case,“ skrifaði hann á Facebook.

Gamalt orðalag um börn í leik

Þegar kemur að hugtakinu súkkulaðikleina hefur það lengi verið notað af Íslendingum í samhengi við börn við leik. Súkkulaðikleinur séu börn sem njóti ákveðinnar verndar í leiknum og taki ekki ábyrgð.

Í gegnum árin hafa orðin súkkulaði og kleina einnig verið notuð um þetta sama hugtak, en það virðist hafa verið breytilegt eftir árum og bæjarfélögum. Hugtakið hefur þar að auki ekki eingöngu átt við börn. Fullorðið fólk er oft einnig kallað súkkulaðikleina.

Meðal annars má vísa til umræðu um þetta hugtak í Facebook-hópnum Skemmtileg íslensk orð frá desember 2022. Þar var hugtakið einnig til umræðu árið 2020 og kom þá fram að orðalagið væri mjög breytilegt eftir aldri fólks og hvaðan það kæmi.

Samhengið skipti máli

Margir taka undir gagnrýni Össurar, þá frekar fólk á vinstri væng í pólitík, á meðan Sjálfstæðismenn og fleiri koma Hildi til varnar.

Meðal þeirra sem taka undir gagnrýnina er Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður, sem segist hissa á að Hildur sé ekki spurð út í þessi ummæli. Hann segir að Sigmundi Davíð eða Snorra Mássyni yrði ekki hlíft við svona ummælum.

Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslensku tekur einnig undir gagnrýni Össurar. Hann segir samhengið skipta máli. Þegar orðið „súkkulaðikleina“ sé notað um konu með dökkan hörundslit sé ekki hægt að túlka það öðruvísi en það vísi til húðlitar.

Öðrum þykir Össur teygja sig langt í gagnrýninni. Í einum ummælum er vísað til þess að Hildur hafi kallað Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, súkkulaðikleinu í kappræðum Sýnar, hið rétta er að það var í kappræðum MBL. Sú sem bendir á það segir að Hildur einhvern tímann hafa kallað sig súkkulaðikleinu.

Páll Magnússon, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri, segir að í samhenginu sem Hildur hafi látið þessi orð falla þýði súkkulaðikleina að vera „stikkfrí“ og að vera hlíft umfram aðra. Þetta sé alþekkt hugtak og hafi ekkert með húðlit að gera.

„Það er skammarlegt að hefja rasistastimpilinn á loft að ófyrirsynju þótt maður sé ósammála einhverjum í pólitík,“ segir Páll.

Illugi svarar Páli á þá leið að oft hafi verið talað um Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, sem gluggaskraut manna. Það hafi honum alltaf þótt skammarlega að orði komast.

„Mér finnst líka skammarlegt að saka starfandi stjórnmálamann, sem hefur sannarlega staðið í ströngu, um að vera „stikkfrí“. Það er Hildi reyndar ekki til sóma.“

Rúnar Freyr Gíslason, frambjóðandi á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík lætur einnig að sér kveða í umræðunni við færslu Össurar og segir að hann hljóti að vita betur. Hann vísar einnig til gamallar notkunnar hugtaksins og bendir á að Hildur hafi einnig kallað Einar súkkulaðikleinu.

„Þetta er ömurlegt hjá þér Össur, ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram. Það trúir enginn því að Hildur sé rasisti, ekki nokkur maður. Úff.“

Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi formaður Siðmenntar, svarar Rúnari um hæl.

„Við vitum öll að súkkulaðikleina merkir stikkfrí. Ekki láta eins og við séum bara illa að okkur í barnaleikjum. Vandamálið er að átta sig ekki á því að félagslegt samhengi skiptir máli þegar þú velur orðin þín. Ég get kallað barnið mitt apakött þegar hann er að klifra í trjánum, en það er ekki í lagi að kalla brúnan bekkjarbróður hans það. Þetta er mér ljóst og mörgum fleirum,“ segir Inga.

Öllum geti orðið á að nota orð sem hæfi ekki samhenginu. Það sé tilfellið hjá Hildi.

„En í stað þess að biðjast afsökunar, fordæma eigin orð og útskýra merkinguna, en jafnframt viðurkenna að orðin hafi verið vitlaust valin, þá mætir fólkið hennar í kommentakerfið og bakkar orðin upp; snýr út úr og gerir lítið úr atvikinu.“

Orðin séu ekki vandamálið heldur viðbrögðin. 

Vísaði einnig í deilur innan Sjálfstæðisflokksins

Þetta er ekki eina færslan sem Össur hefur skrifað um Hildi á dögunum og greinilegt að flokkur hennar er honum ofarlega í huga. Kosningaspá Vísis spáir Sjálfstæðisflokknum átta borgarfulltrúum á meðan Samfylkingunni hefur fatast flugið og mælist nú með fimm. 

Össur skrifaði aðra færslu um Hildi á Facebook í gær eftir kappræðurnar á Rúv. Sú færsla fjallaði um það að miklar deilur hafa átt sér stað innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins undir stjórn hennar þar sem borgarfulltrúar hefðu verði ósammála og sumir yfirgefið flokkinn.Velti hann vöngum yfir því hvort flokkur sem gæti ekki stjórnað sjálfum sér gæti stjórnað borginni.

Bolli Thoroddsen , sem er innanbúðarmaður í Sjálfstæðisflokknum, er meðal þeirra sem hefur svarað færslu Össurar frá því í gær. Rifjar hann upp feril Hildar í stjórnmálum, vinnu og félagsmálum og vísar til þess að undir stjórn hennar hafi fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík aukist til muna.

Bolli segir sína heitustu ósk vera meirihluta myndaðan af Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og svo Miðflokknum og/eða Viðreisn.

„Vil ég nota tækifærið að hvetja Viðreisn til að endurskoða afstöðu sína og útiloka ekki samstarf við Miðflokkinn. Ég hef starfað með Ara Edwald sem er framsýnn og öflugur rekstrarmaður. Þó ég, líkt og margir, telji að Samfylkingin þurfi langt og gott frí í borginni þá vil ég heldur ekki að Hildur útiloki slíkt tveggja flokka samstarf. Öfugt við ýmsa leiðtoga hefur hún einmitt ekki gert það. Sem kemur aftur að mínum útgangspunkti hér, þ.e. hversu víðsýnn og skynsamur leiðtogi Hildur Björnsdóttir er.“

#deilt #hildar #orð #sönnu #súkkulaðikleinuna

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884724d/deilt-um-ord-hildar-um-sukkuladikleinuna-sonnu

📰 Aðrar fréttir

Meirihlutinn fallinn í Skaftárhreppi - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Meirihlutinn fallinn í Skaftárhreppi - DV
Talningu er lokið í Skaftárhreppi. Frá þessu greinir Vísir. Alls greiddu 330 atkvæði, sex kjörseðlar voru auðir og fjórir ógildir. Niðurstaðan er sú a...
Loka­tölur úr Skaftárhreppi: Meiri­hlutinn kolfallinn - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Loka­tölur úr Skaftárhreppi: Meiri­hlutinn kolfallinn - Vísir
Atkvæði skiptast þannig: D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra 199 atkvæði og þrír menn kjörnir. Ö-listi Öflugt samfélag 121 atkvæði og tveir menn kjörn...
Aðal­steinn verður á­fram sveitar­stjóri - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Aðal­steinn verður á­fram sveitar­stjóri - Vísir
Aðalsteinn J. Halldórsson á Ketilsstöðum skipar efsta sæti listans og segir Bjarni Sigurður Aðalgeirsson, formaður yfirkjöstjórnar, í samtali við Vísi...
Rúmlega helmingur Reykvíkinga hefur kosið - Bendir kjörsókn í Grafarvogi og Vesturbæ til þess að eitthvað sé í aðsigi? - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Rúmlega helmingur Reykvíkinga hefur kosið - Bendir kjörsókn í Grafarvogi og Vesturbæ til þess að eitthvað sé í aðsigi? - DV
Reykjavíkurborg heldur úti mælaborði sem sýnir kjörsókn á ólíkum kjörstöðum borgarinnar en miðað við stöðuna klukkan 20:00 í kvöld höfðu 51,31% Reykví...
Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi
📅 16.05.2026 👁️ 0
Mikil ánægja með rafrænu kjörskrána í Flóahreppi
Formaður landskjörstjórnar mætti í félagsheimilið Félagslund í Flóahreppi og kaus enda búsett í sveitarfélaginu en hér erum við að tala um Kristínu Ed...
Falsað Xanax í umferð inniheldur sterkt dýralækningalyf
📅 16.05.2026 👁️ 0
Falsað Xanax í umferð inniheldur sterkt dýralækningalyf
Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins, um samræmingu gagna og snemmbúnar viðvaranir við fíkniefnafaraldri, hefur sent út gula viðvörun vegna hættulegs ...
Lokatölur komnar úr Svalbarðsstrandarhreppi - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Lokatölur komnar úr Svalbarðsstrandarhreppi - DV
Öll atkvæði hafa verið talin í Svalbarðsstrandarhreppi. Á kjörskrá voru 377 og var kosningaþátttaka 78,8%. Af greiddum atkvæðum voru 4 auðir seðlar og...
Sval­barðs­strandar­hreppur fyrstur til að birta loka­tölur - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Sval­barðs­strandar­hreppur fyrstur til að birta loka­tölur - Vísir
H-listi Strandar til framtíðar og Ö-listi Ströndungs fengu báðir tvo menn kjörna og S-listi Samstöðu einn. Í tilkynningu sem birt er á vef sveitarféla...
Police pelted with bottles as Celtic fans celebrate Scottish Premiership title in Glashow's east end
📅 16.05.2026 👁️ 0
Police pelted with bottles as Celtic fans celebrate Scottish Premiership title in Glashow's east end
Bottles and other missiles have been thrown at police as thousands of Celtic fans celebrated the club's fifth successive Scottish Premiership title wi...
How tourists pay online safely in Tenerife according to Casinostrider experts
📅 16.05.2026 👁️ 0
How tourists pay online safely in Tenerife according to Casinostrider experts
Spain's National Statistics Institute (INE) confirmed the Canary Islands welcomed 18.39 million international visitors in 2025. Millions relied on dig...
Flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð skuli kjósa
📅 16.05.2026 👁️ 0
Flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð skuli kjósa
Kjörsókn hefur verið með meira móti um allt land en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Kjósendur sem fréttastofa hitti í dag voru flestir löngu búnir...
„Við erum fólkið sem er að fara að vera hér í framtíðinni“
📅 16.05.2026 👁️ 1
„Við erum fólkið sem er að fara að vera hér í framtíðinni“
Fjöldi ungmenna gengur að kjörborðinu í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum í dag. Fréttastofa fékk að fylgja hinni nítján ára gömlu Huldu Maríu Gy...
Vann 131 milljón króna á kjör­degi - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 1
Vann 131 milljón króna á kjör­degi - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Þar segir að hann hafi keypt miðann á heimasíðunni, lotto.is. Enginn var með bónusvinninginn í út...
Hvað gerist í Reykja­vík í kvöld? - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 3
Hvað gerist í Reykja­vík í kvöld? - Vísir
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, ræddi stöðuna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Hann segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og...
Mynda Hildur og Pétur meiri­hluta eftir allt saman? - Vísir

Tens of thousands join rival protests in London
📅 16.05.2026 👁️ 0
Tens of thousands join rival protests in London
Tens of thousands of protesters joined two rival marches in London on Saturday - the Unite the Kingdom rally organised by far-right figure Tommy Robin...
Bíl ekið á hóp manna í Modena - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 1
Bíl ekið á hóp manna í Modena - Vísir
AP greinir frá því að átta hafi slasast og þar af fjórir alvarlega. Ökumaður bílsins á að hafa reynt að leggjast á flótta og reynt að stinga mann sem ...
Police pelted with bottles as Celtic fans celebrate Scottish Premiership title
📅 16.05.2026 👁️ 1
Police pelted with bottles as Celtic fans celebrate Scottish Premiership title
Bottles and other missiles have been thrown at police as thousands of Celtic fans celebrated the club's fifth successive Scottish Premiership title wi...
Kallað til lögreglu út af aðila sem borðaði epli í strætó - DV
📅 16.05.2026 👁️ 1
Kallað til lögreglu út af aðila sem borðaði epli í strætó - DV
Lögreglan hefur tekist á við fjölbreytt verkefni í dag. Á svæði lögreglustöðvar 3 sem fer með verkefni í Kópavogi og Breiðholti var haft samband við l...
Útkall vegna óbilgjarnrar eplaætu í strætó
📅 16.05.2026 👁️ 1
Útkall vegna óbilgjarnrar eplaætu í strætó
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna einstaklings sem borðaði epli í strætó.Í tilkynningu lögreglu segir að samkvæmt strætóbílstjó...
Framkvæmdir við Vestfjarðaveg tefjast enn frekar
📅 16.05.2026 👁️ 1
Framkvæmdir við Vestfjarðaveg tefjast enn frekar
Vegagerðin stefnir á að bjóða út 210 metra langa netbogabrú yfir Djúpafjörð í Austur-Barðastrandarsýslu í næstu viku. Undirbúningur að smíði hennar he...
Afstaða Þjóðarflokksins stendur í vegi fyrir hægri stjórn
📅 16.05.2026 👁️ 0
Afstaða Þjóðarflokksins stendur í vegi fyrir hægri stjórn
Troels Lund Poulsen hefur boðið leiðtogum annarra danskra stjórnmálaflokka til fundar í viðleitni til þess að mynda starfhæfa stjórn. Líklegra þykir n...
Segir þetta varhugaverða þróun í íslenskum stjórnmálum - „Veita takmarkaðar lausnir og eru í sjálfu sér mótsagnakenndar“ - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Segir þetta varhugaverða þróun í íslenskum stjórnmálum - „Veita takmarkaðar lausnir og eru í sjálfu sér mótsagnakenndar“ - DV
Lenya Rún Taha Karim, fyrrum varaþingmaður Pírata, segir það varhugaverða þróun að Íslendingar séu í auknum mæli farnir að kjósa taktískt í kosningum....
Bein út­sending: Gott kosningakvöld með öllu til­heyrandi - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Gott kosningakvöld með öllu til­heyrandi - Vísir
Benni og Fannar eru löngu þekktir fyrir innslögin sín og verður gaman að sjá hvernig þeim gengur að hringja út fyrir Sósíalista og safna atkvæðum fyri...
Streeting says he would join leadership race as Burnham vows to 'save' Labour
📅 16.05.2026 👁️ 0
Streeting says he would join leadership race as Burnham vows to 'save' Labour
Wes Streeting has confirmed he would enter any potential Labour leadership contest, days after resigning as health secretary and telling the prime min...
Taiwan reaffirms independence despite Trump warning
📅 16.05.2026 👁️ 0
Taiwan reaffirms independence despite Trump warning
Taiwan has insisted it is a sovereign, independent nation, after US President Donald Trump cautioned it against formally declaring independence from C...
Bylgjan baðst afsökunar á nafnlausum áróðri gegn Viðreisn - „Viðvörun til allra hægri kjósenda“ - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Bylgjan baðst afsökunar á nafnlausum áróðri gegn Viðreisn - „Viðvörun til allra hægri kjósenda“ - DV
Bylgjan hefur beðið Viðreisn afsökunar á nafnlausum áróðri sem var fluttur í auglýsingatíma útvarpsstöðvarinnar í gær. Þar voru hægrimenn varaðir við ...
Eftir­lits­menn á vegum Evrópu­ráðsins fylgjast með kosningunum - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Eftir­lits­menn á vegum Evrópu­ráðsins fylgjast með kosningunum - Vísir
Landskjörstjórn gefur út heimildir til kosningaeftirlits við kosningar hér á landi en helstu markmið og tilgangur eru að auka gagnsæi við framkvæmd ko...
The race to replace Starmer is on - but he still faces a momentous choice
📅 16.05.2026 👁️ 0
The race to replace Starmer is on - but he still faces a momentous choice
"Every morning when he wakes up, it's been the same two questions. Does Wes have the numbers? And does Andy have a seat?"An ally of the prime minister...
Streeting skorar Starmer á hólm og vill Bretland aftur í ESB
📅 16.05.2026 👁️ 0
Streeting skorar Starmer á hólm og vill Bretland aftur í ESB
Wes Streeting, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Bretlands, hefur skorað Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, á hólm...
Kjörsókn víða betri það sem af er degi en fyrir fjórum árum
📅 16.05.2026 👁️ 0
Kjörsókn víða betri það sem af er degi en fyrir fjórum árum
Kjörsókn í Reykjavík er ívið meiri það sem af er degi en var í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Klukkan 15 höfðu rétt tæp 29% kjósenda á kjörskrá gre...
Trump fórnar Taívan
📅 16.05.2026 👁️ 1
Trump fórnar Taívan
Trump fórnar Taívan Banda­ríkja­for­seti not­ar sjálf­stæði Taívans í samn­inga­við­ræð­um við keppi­naut, en Taívan­ar segj­ast vera sjálf­stæð­ir. T...
Rescue diver dies during search for bodies of Italians who drowned in Maldives caves
📅 16.05.2026 👁️ 0
Rescue diver dies during search for bodies of Italians who drowned in Maldives caves
A rescue diver has died while searching for the bodies of a group of Italians who died in a scuba-diving accident in the Maldives. Staff Sgt Mohamed M...
Lögmaður foreldra: „Ekkert til sem heitir rangur líkami barns“
📅 16.05.2026 👁️ 0
Lögmaður foreldra: „Ekkert til sem heitir rangur líkami barns“
Lögmaður foreldra: „Ekkert til sem heitir rangur líkami barns“ ForsíðaFréttir Tweet Fyrir hönd foreldra barns í Vesturbæjarskóla hefur lögmaður sent e...
Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins - DV
📅 16.05.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins - DV
Það verður ekki brýnt nógu oft fyrir háttvirtum kjósendum að hægri vængur íslenskra stjórnmála er hallur undir einkavinavæðingu. Sagan sýnir það og sa...
Hvað myndi borgarstjórn til vinstri þýða fyrir borgarbúa?
📅 16.05.2026 👁️ 0
Hvað myndi borgarstjórn til vinstri þýða fyrir borgarbúa?
Hvað myndi borgarstjórn til vinstri þýða fyrir borgarbúa? Heim­ild­in hef­ur greint áherslu mögu­legra meiri­hluta­sam­starfa hjá Reykja­vík­ur­borg. ...
Haukur í klemmu og kosningasjónvarpið breytti litlu - „Ég vil gerbreytta stefnu í Borginni og er vinstri sinnaður“ - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Haukur í klemmu og kosningasjónvarpið breytti litlu - „Ég vil gerbreytta stefnu í Borginni og er vinstri sinnaður“ - DV
Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson er í klemmu í dag. Hann er vinstrimaður Reykvíkingur en vill þó sjá breytingar í borginni og fella stefnu nú...
Tens of thousands descend on London for rival protests
📅 16.05.2026 👁️ 0
Tens of thousands descend on London for rival protests
Tens of thousands of protesters have descended on London for two rival marches - the Unite the Kingdom rally, organised by far-right figure Tommy Robi...
Rof í Reykjavík
📅 16.05.2026 👁️ 1
Rof í Reykjavík
Rof í Reykjavík Að kaupa ís­skáp á einka­bíl, að byggja gegn vilja fólks og úti­loka aðra. Ekki að­eins sýna fram­bjóð­end­ur í borg­ar­stjórn­ar­kosn...
Ummæli Hildar um Sönnu vekja mikil viðbrögð - „Ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram“ - DV
📅 16.05.2026 👁️ 0
Ummæli Hildar um Sönnu vekja mikil viðbrögð - „Ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram“ - DV
Óhætt er að segja að ummæli sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lét falla um Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinst...
Felldu næst­æðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Felldu næst­æðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ - Vísir
Al-Minuki er talinn hafa spilað stóra rullu í því þegar Íslamska ríkið í Vestur-Afríku (ISWAP) varð til með aðskilnaði við Boko Haram árið 2016. Verði...
Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur - Vísir
Frambjóðendurnir fóru ýmsar leiðir en flestir nýttu sekúndurnar til að kynna sín allra helstu stefnumál á sem hnitmiðaðastan hátt. Flestir minntust á ...
Reykvíkingur ákærður fyrir göngutúr úti á landi
📅 16.05.2026 👁️ 0
Reykvíkingur ákærður fyrir göngutúr úti á landi
Reykvíkingur ákærður fyrir göngutúr úti á landi SiglufjörðurMáttu ekki labba í gegnum göng. Mynd: Steinninn/Wikipedia Tveir einstaklingar, annar þeirr...
Sjómenn hafi ekki óskað eftir fundi: „Það er ekkert mál að semja“
📅 16.05.2026 👁️ 0
Sjómenn hafi ekki óskað eftir fundi: „Það er ekkert mál að semja“
Formaður Samtaka smærri útgerða segir það ekki stranda á þeim eða Samtökum smábátaeigenda að halda kjaraviðræðum við Sjómannasambandið áfram. Hann seg...
Mikil ánægja með nýja gufubaðsaðstöðu á Selfossi
📅 16.05.2026 👁️ 0
Mikil ánægja með nýja gufubaðsaðstöðu á Selfossi
Nýtt sauna svæði hefur verið opnað í Sundhöll Selfoss, sem var hannað með þægindi, vellíðan og slökun að leiðarljósi. Nýja aðstaðan kostaði um 50 mill...
Segjast hafa ráðið einn leiðtoga Hamas af dögum
📅 16.05.2026 👁️ 0
Segjast hafa ráðið einn leiðtoga Hamas af dögum
Sjö, hið minnsta, voru drepnir og tugir særðir í árásum Ísraelshers á Gaza-borg í gær. Herinn segist hafa ráðið einn af leiðtogum Hamas af dögum í árá...
Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburði í Grafarvogi
📅 16.05.2026 👁️ 0
Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburði í Grafarvogi
Mikill munur er á fylgi flokkanna í Reykjavík eftir hverfum borgarinnar.Í Grafarvogi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings 47% kjósenda, Miðflokkurinn...
Mikill viðbúnaður í London vegna mótmæla
📅 16.05.2026 👁️ 0
Mikill viðbúnaður í London vegna mótmæla
Mikill viðbúnaður er í miðborg London í dag vegna fyrirhugaðra mótmæla. 4.000 lögreglumenn eru á vakt með brynvarða bíla, hesta, hunda, dróna og þyrlu...
Poulsen býður Frederiksen til viðræðna
📅 16.05.2026 👁️ 1
Poulsen býður Frederiksen til viðræðna
Leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku, Mette Frederiksen, er ein þeirra sem hafa fengið boð frá Troels Lund Poulsen, leiðtoga Venstre, um að mæta á fund v...
Enginn aug­ljós meiri­hluti á vinstri vængnum - Vísir
📅 16.05.2026 👁️ 0
Enginn aug­ljós meiri­hluti á vinstri vængnum - Vísir
Samkvæmt kosningaspá Vísis eru meira en helmingslíkur á því að áðurnefndir þrír flokkar geti myndað meirihluta í Reykjavík. Yrði það eini raunhæfi mög...