Wes Streeting, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Bretlands, hefur skorað Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, á hólm. Hann staðfestir að hann muni gefa kost á sér í formannskjöri flokksins, takist honum að safna nógu mörgum meðmælum til þess.
„Við þurfum raunverulega keppni með hæfustu frambjóðendunum og ég verð í framboði,“ sagði Streeting.
Tveir dagar eru síðan Streeting sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra, en síðan þá hefur þótt ljóst að hann ynni að formannsframboði.
Samkvæmt reglum Verkamannaflokksins þarf 20% þingmanna flokksins, þ.e. 81 þingmaður, að lýsa yfir stuðningi við tiltekinn frambjóðanda til þess að boðað sé til formannskosninga fyrr en áætlað var. Þannig nægir ekki að nógu margir þingmenn lýsi einfaldlega vantrausti á Starmer heldur þurfa þeir að koma sér saman um mótframbjóðandann.
Streeting segir að í síðustu formannskosningum hafi flokkurinn verið of hræddur við Íhaldsflokkinn. Frambjóðendur hafi forðast rökræður og skoðanaskipti af ótta við að það yrði túlkað sem klofningur innan flokksiuns. „Við höfum dregið þessa menningu með okkur inn í ríkisstjórn,“ sagði hann.
Streeting lýsti því jafnframt yfir að það hefðu verið stórkostleg mistök að ganga úr Evrópusambandinu. Hann hét því að leggja áherslu á nánari samskipti við Evrópusambandið og – það sem meira er – sagði að Bretland ætti að endingu að ganga aftur í Evrópusambandið.