Bylgjan hefur beðið Viðreisn afsökunar á nafnlausum áróðri sem var fluttur í auglýsingatíma útvarpsstöðvarinnar í gær. Þar voru hægrimenn varaðir við því að greiða atkvæði til Viðreisnar og fullyrt að forysta flokksins myndi aldrei leyfa samstarf við aðra hægriflokka.
Auglýsingin var eftirfarandi:
„Viðvörun til allra hægri kjósenda: Atkvæði til Viðreisnar er atkvæði til vinstri þar sem forysta Viðreisnar mun ekki leyfa samstarf við Sjálfstæðisflokk, Miðflokk og Framsóknarflokk. Kjóstu til hægri en ekki Viðreisn.“
Ekki fylgdi með hver stóð að baki auglýsingunni en samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV mun það vera Garðbæingurinn og Sjálfstæðismaðurinn Björn Skorri Ingólfsson og birtingarhúsið Bestun. Hefur DV eins heimildir fyrir því að bæði Bylgjan og Bestun hafi beðið Viðreisn afsökunar á birtingunni sem þykir stríða gegn góðum siðum og reglum.
Ekki er að sjá að Bylgjan hafi birt stefnu sína í kosningaauglýsingum á vefsíðu sinni en umræður um auglýsingar af þessu tagi hafa áður sprottið upp kollinum og má þá helst nefna þingkosningarnar árin 2016 og 2017 þar sem nafnlausar áróðursauglýsingar voru svo áberandi að það leiddi til lagabreytinga þar sem blátt bann var lagt við slíku. Nú er að finna ákvæði í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka þar sem nafnlaus áróður varðar við sektum sé hann á vegum stjórnmálasamtaka, kjörinna fulltrúa, frambjóðenda eða frambjóðenda í persónukjöri. Þessum aðilum er óheimilt að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra. Áðurnefndur Björn Skorri er hvorki frambjóðandi né kjörinn fulltrúi en Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur hvatt Íslendinga til að setja sér reglur hvað varðar kosningabaráttu af hálfu þriðja aðila. Árið 2021 þegar nafnlaus áróður á vegum stjórnmálasamtaka og stjórnmálamanna var bannaður voru sömuleiðis settar reglur um að allar auglýsingar eða kostað efni sem ætlað er að hafa áhrif á úrslit kosninga þurfi að vera merkt auglýsanda eða ábyrgðarmanni.
Eins má vísa til siðareglna Sambands íslenskra auglýsingastofa þar sem segir meðal annars:
„Auglýsingar eiga hvorki að innihalda yfirlýsingar, staðhæfingar, hljóð- né myndefni sem líklegt er til að villa um fyrir neytandanum, beint eða óbeint, með því að gefa eitthvað í skyn, sleppa nauðsynlegum upplýsingum eða með því að nota tvíræða framsetningu eða ýkjur“
Eins er það tekið fram að augljóst eigi að vera hver auglýsandinn er. RÚV hefur sett sér sérstakar reglur um auglýsingar hagsmunasamtaka, stjórnmálaflokka og stuðningsmanna flokka, einstakra málefna og einstaklinga. Þar er sú krafa gerð að staðhæfingar í auglýsingum séu sannreynanlegar með einföldum og aðgengilegum hætti.
Auglýsingunni var beint til allra hægri kjósenda en ætla má að þar sé einkum verið að skora á kjósendur í borginni þar sem líklegt er talið að Viðreisn endi í lykilstöðu. Rétt er að taka fram að Viðreisn hefur ekki útilokað samstarf til hægri en samkvæmt kosningaspá Vísis eru meira en helmingslíkur á að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn myndi nýjan meirihluta. Að mati Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði, er það augljósasti meirihlutinn út frá málefnum, stöðu og afstöðu oddvita flokkanna þriggja. Oddviti Viðreisnar í Reykjavík, Björg Magnúsdóttir, hefur aðeins útilokað samstarf við Miðflokkinn.