Fjöldi ungmenna gengur að kjörborðinu í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum í dag. Fréttastofa fékk að fylgja hinni nítján ára gömlu Huldu Maríu Gylfadóttur á kjörstað þar sem hún greiddi atkvæði í kosningum í fyrsta skipti.
Hulda segir mikilvægt að ungt fólk láti sig samfélagið varða og taki þátt í kosningum. Hún segist hafa hvatt vini sína og jafnaldra til þess að nýta kosningaréttinn.
„Ég hef verið að hvetja alla til þess að kjósa. Ég er búin að spyrja mjög marga, hvað ert þú að kjósa og reyna að tala við fólk. Af því að við erum partur af þessu samfélagi. Við erum fólkið sem er að fara að vera hér í framtíðinni,“ segir Hulda.