Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna einstaklings sem borðaði epli í strætó.
Í tilkynningu lögreglu segir að samkvæmt strætóbílstjóranum sé farþegum með öllu óheimilt að borða epli í strætó. Málið var afgreitt af lögreglu.
Lögreglunni barst einnig lögreglunni einnig tilkynning um dyrabjölluat í hverfi 109. Rætt var við einstaklinginn sem í því stóð og honum gert að hætta að ónáða fólk.
Þá tekur lögregla fram að engar tilkynningar hafa borist sem snúa að kjörstöðum á höfuðborgarsvæðinu í dag.