Óhætt er að segja að ummæli sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lét falla um Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, í hlaðvarpsþættinum Þjóðmálum hafi vakið athygli.
Hildur fór ekki beint fögrum orðum um Sönnu og sagði hana hafa varpað fram kosningaloforðum sem ómögulegt er að standast við. Það voru þó helst ummæli hennar um að Sanna væri „súkkulaðikleina“ sem fóru fyrir brjóstið á mörgum.
„Þetta er svo frústrerandi að horfa einhvern veginn á vinstri flokkana lofa fólki öllu fögru og koma fram með einhver plön sem stemma ekki. Það er bara engin leið til að fá þau til að stemma. Einmitt bara Sanna sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni, sem boðar hérna stórkostlega uppbyggingu á félagslegu húsnæði með aukinni skuldsetningu Félagsbústaða. Ber það saman við einhver fasteignafélög á markaði og ætlar að ljúga því að fólki að það verði einhver hagstæð leiga. Þetta er bara della.“
Sjá einnig: Hildur fer ófögrum orðum um Sönnu – Sé súkkulaðikleina sem ljúgi
„Síðasta sort hjá Hildi“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fjallaði um málið á Facebook-síðu sinni og hafði þetta að segja:
„Ég er kannski viðkvæmari fyrir því en aðrir þegar konur með brúna húð eru uppnefndar „súkkulaðikleinur“. Mér fannst þetta að minnsta kosti síðasta sort hjá Hildi og leyfi mér að efast stórlega um að hún eigi erindi í stól borgarstjóra. I rest my case.”
Undir þetta tók fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson. „Þetta voru alveg ótrúleg orð hjá Hildi og ég er hissa á því að hún sé ekki spurð um þetta. Burtséð frá allri pólitík. Sigmundi Davíð og Snorra Mássyni yrði ekki hlíft ef þeir hefðu sagt þetta. Hví henni?“
„Þetta er ömurlegt hjá þér Össur“
Sjálfstæðismenn voru þó fljótir að koma Hildi til varnar og sagði til dæmis Rúnar Freyr Gíslason, leikari, verkefnastjóri RÚV og frambjóðandi flokksins í borginni, að Hildur hafi einnig kallað Einar Þorsteinsson súkkulaðikleinu í umræðuþætti á Mbl.is.
„Þetta er ömurlegt hjá þér Össur, ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram. Það trúir enginn því að Hildur sé rasisti, ekki nokkur maður. Úff.“
Hafrún Kristjánsdóttir, sem er í 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, sagði að Össur væri að seilast of langt og bendir á að síðast í gær hafi Hildur spurt hana hvort hún ætlaði að vera „súkkulaðikleina“ þegar hún sagðist koma seint á vaktina í dag.
„Súkkulaðikleina er orð sem margir nota þegar þeir vísa í að einhver sé stikkfrí eða sleppi við eitthvað. Þetta hefur ekkert með húðlit að gera. Ég hef mikla óbeit á rasisma og það á alltaf að kalla hann út þegar hann birtist. Það er hins vegar mjög ómaklegt að gefa í skyn að einhver sé rasisti þegar það á alls ekki við, jafnvel þótt sé kjördagur og það blási ekki byrlega,” sagði Hafrún.
„Óheppilegt orðalag“
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, svarar Hafrúnu og segir að þetta breyti því ekki að ýmis orð sem hafa almenna merkingu séu oft notuð til að gera lítið úr ýmsum jaðarhópum og hafa sérstaka merkingu í því sambandi.
„“Hafdís fílar skæri“ þótti niðurlægjandi um daginn þótt orðið „skæri“ sé almennt saklaust. Þegar „súkkulaðikleina“ er notað um konu með dökkan hörundslit gegnir sama máli – það er ekki hægt að túlka það öðruvísi en það vísi til húðlitar,“ segir Eiríkur sem skrifar síðan status á eigin Facebook-síðu um málið sem má lesa hér að neðan.
Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson blandar sér einnig í umræðuna á Facebook-síðu Össurar og segist ekki hafa nokkra einustu trú á því að Hildur Björnsdóttir væri rasisti. „En þetta er óheppilegt orðalag þegar Sanna er annars vegar og gæti auðveldlega misskilist. Ég t.d. hef aldrei heyrt þetta notað áður sem myndlíkingu.“