Öll atkvæði hafa verið talin í Svalbarðsstrandarhreppi. Á kjörskrá voru 377 og var kosningaþátttaka 78,8%. Af greiddum atkvæðum voru 4 auðir seðlar og 3 ógildir.
Niðurstaðan er eftirfarandi:
- H-listi Strönd til framtíðar hlaut 100 atkvæði og 2 menn kjörna
- S-listi Samstöðu hlaut 67 atkvæði og 1 mann kjörinn
- Ö-listi Ströndungs hlaut 121 atkvæði og 2 menn kjörna
Ný sveitarstjórn er því skipuð eftirfarandi:
- Bjarni Þór Guðmundsson Ö-listi
- Ólafur Rúnar Ólafsson H-listi
- Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir S-listi
- Árný Þóra Ágústsdóttir Ö-listi
- Gréta María Halldórsdóttir H-listi