H-listi Strandar til framtíðar og Ö-listi Ströndungs fengu báðir tvo menn kjörna og S-listi Samstöðu einn.
Í tilkynningu sem birt er á vef sveitarfélagsins, sem er í austanverðum Eyjafirði, segir að búið sé að telja öll atkvæði í Svalbarðsstrandarhreppi og birta niðurstöður. Við sveitarstjórnarkosningarnar voru 377 á kjörskrá.
295 greiddu atkvæði eða 78,2 % kosningaþáttaka, af þeim voru 4 auðir og 3 ógildir.
Atkvæðin skiptust þannig:
- H-listi Strönd til framtíðar fékk 100 atkvæði og 2 menn kjörna
- S-listi Samstöðu fékk 67 atkvæði og 1 mann kjörinn
- Ö-listi Ströndungs fékk 121 atkvæði og 2 menn kjörna
Í nýrri sveitarstjórn eiga því sæti:
- Bjarni Þór Guðmundsson Ö-listi
- Ólafur Rúnar Ólafsson H-listi
- Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir S-listi
- Árný Þóra Ágústsdóttir Ö-listi
- Gréta María Halldórsdóttir H-listi