Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins, um samræmingu gagna og snemmbúnar viðvaranir við fíkniefnafaraldri, hefur sent út gula viðvörun vegna hættulegs efnis sem er í dreifingu hér á landi, og sagt vera Xanax.
Falsaða lyfið er í hylkjaformi en Xanax er í töfluformi. Hvít hylkin innihalda ekki alprazólam eins og raunverulega lyfið heldur einungis hreint medetómidín. Það er mjög sterkt slævandi lyf, sem er 200 sinnum sterkara en xýlazín sem notað er við dýralækningar hér á landi.
Getur valdið blóðþrýstingsfalli og að verulega hægist á hjartslætti
Engilbert Sigurðsson er yfirlæknir á geðsviði Landspítala og í starfshópi heilbrigðisráðuneytisins. Hann segir þetta í fyrsta sinn sem medetómidín finnst hér á landi.
„Það getur valdið því að það hægist verulega á hjartslætti og getur valdið falli á blóðþrýstingi. Það getur valdið verulegri slævingu sérstaklega ef það er líka verið að nota það með öndunarbælandi efnum eins og ópíötum; lyf eins og morfí, heróín og oxýkódon og fentanýl svo dæmi séu tekin,“ segir Engilbert.
Dauðsföllum vegna óhappaeitrana fjölgar
Hann segir mjög mikilvægt að fólk leiti á sjúkrahús finni það fyrir vanlíðan eftir að innbyrt óþekkt efni. Dauðsföllum vegna óhappaeitrana hafi fjölgað, þegar fólk veit ekki hvað það er að innbyrða. „Þetta er að vaxa nokkuð stöðugt á Íslandi tæpa áratuginn, það sjáum við alveg í gögnum í dag,“ segir Engilbert.
„Það er þróun sem er í takt við aðra þróun í heiminum og eina leiðin til að bregðast við þessu er auðvitað bara að reyna koma upplýsingum á framfæri eins hratt og hægt er.“
Unnið að vef til að koma upplýsingum til almennings sem fyrst
Heilbrigðisráðuneytið vinnur að heimasíðu þar sem gefnar eru út viðvaranir vegna slíkra efna byggð á fyrirmyndum frá Noregi og Nýja-Sjálandi. Engilbert, sem er í starfshópi ráðuneytisins segir hana svo gott sem tilbúna og vonast til að hún komist í gagnið fyrir mánaðarmót.
„Þar munum við reyna að koma til almennings, og allra sem eru að nota svona efni eða líklegir til að kaupa fölsuð efni, upplýsingum um hættuna sem kemur upp þegar eitthvað nýtt kemur inn á markaðinn,“ segir Engilbert.