Lenya Rún Taha Karim, fyrrum varaþingmaður Pírata, segir það varhugaverða þróun að Íslendingar séu í auknum mæli farnir að kjósa taktískt í kosningum. Þannig séu þeir í raun að greiða atkvæði gegn einhverju frekar en með. Niðurstaðan sé svo sú að mikilvægar raddir hverfi úr stjórnmálum. Hún hvetur landsmenn til að kjósa eftir eigin sannfæringu.
Lenya skrifar á Facebook í dag:
„Taktískar kosningar veita takmarkaðar lausnir og eru í sjálfu sér mótsagnakenndar. Þegar kjósendur hætta að kjósa þá flokka sem þeim raunverulega hugnast og treysta til góðra verka af ótta við að atkvæðið þeirra „detti niður dautt“, þá er flokkurinn sem þau vilja halda frá völdum fyrst og fremst að ráða atkvæðinu þeirra. Mér þykir það varhugavert að kosningar á Íslandi séu að þróast á þann hátt að kjósendur séu hvattir til að kjósa gegn einhverju, frekar en með einhverju.“
Fyrrum varaþingmaðurinn bendir á að með þessum hætti geti flokkum í borgarstjórn fækkað og með því aukist líkur á meirihluta til hægri. Taktísku atkvæðin gætu gert útslagið um hvort Píratar eða Sósíalistaflokkurinn haldist inni í borgarstjórn eða ekki.
„Enn sorglegra er líkleg niðurstaða taktískra kosninga, þar sem mikilvægar raddir og afgerandi afstöður í mikilvægum málefnum hverfa úr stjórnmálunum, sem eru jafnframt oftast einu flokkarnir sem hafa útilokað samstarf við þá flokka sem taktísku kosningarnar beinast gegn. Með færri flokkum í borgarstjórn eru þrengri möguleikar á fjölbreyttu stjórnarmynstri og hægri stjórn virðist vera raunhæfasta niðurstaðan. Hver veit nema að taktíska atkvæðið sé það atkvæði sem gerir útslagið um hvort J og/eða P haldist inni í borgarstjórn?
Kæru vinir, ég hvet ykkur öll til að kjósa bara það sem ykkur líst best á. Raunin er nefnilega sú að lýðræðið virkar best þegar fólk kýs eftir eigin sannfæringu frekar en ótta og áróðri.“