Atkvæði skiptast þannig:
- D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra 199 atkvæði og þrír menn kjörnir.
- Ö-listi Öflugt samfélag 121 atkvæði og tveir menn kjörnir.
Í nýrri sveitarstjórn eiga því sæti:
- Sveinn Hreiðar Jensson D-listi
- Sigurður Árnason D-listi
- Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir D-listi
- Jóhannes Gissurarson Ö-listi
- Auður Guðbjörnsdóttir Ö-listi
Öflugt samfélag fór með fjögur af fimm sætum í sveitarstjórn hreppsins á kjörtímabilinu sem leið.