Öryggismenning meðal íslenskra sjómanna hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum. Það þykir alls ekkert feimnismál lengur að ræða um eða æfa öryggisatriðin, segir Stefán Smári Skúlason kennari í Slysavarnaskóla sjómanna. Hann telur að yfirvegun og rétt viðbrögð skipverja á Jökli ÞH hafi skipt sköpum við erfiðar aðstæður þegar skipið fórst um 60 sjómílur austur af landinu.
Kastljós heimsótti í gær Slysavarnaskóla sjómanna þar sjómenn voru við æfingar. Stefán sýndi okkur flotgalla sem eru hannaðir til að bjarga fólki í sjávarháska með því að halda því heitu og þurru í 4–6 klukkustundir.
Skipverjarnir á Jökli sem lengst voru í sjónum voru þar í fimm og hálfa klukkustund.
„Þeir eru í björtum og áberandi litum og þegar þeir blotna kviknar sjálfkrafa ljós. Á göllunum er líka svokölluð félagalína, fólk getur tengt sig saman með henni svo það reki ekki í aðrar áttir,“ útskýrir Stefán.
Það er eitt að læra um þessi mikilvægu öryggisatriði hér en annað að vera í þessum skelfilegu aðstæðum þar sem adrenalínið er í botni og menn þurfa að hugsa hratt. Hvernig er hægt að festa fólki þetta í minni?
„Það góða er að íslenskir sjómenn koma allir hingað til okkar í Slysavarnaskóla sjómanna og fá allir sömu þjálfun og sömu þekkingu og reynslu af þeim búnaði sem þeim stendur til boða á skipunum. Að sjálfsögðu þurfa þeir að koma hingað á fimm ára fresti og endurnýja sín réttindi og skírteini, samanber þeir sem eru hérna fyrir aftan mig,“ segir Stefán og bendir á hóp sem er í óðaönn að rifja upp mikilvæg öryggisatriði.
„Það er skylda hvers skipstjóra og/eða útgerðar að sjá til þess að það séu haldnar reglulegar æfingar um borð í skipunum og það er yfirleitt það sem gerir að verkum að menn gleyma þessu ekki.“
Margir töldu, mögulega var það óskhyggja, að sjóslys af svona stærðar og alvarleika tilheyrðu fortíðinni. Hvað segið þið sem hafið reynsluna?
„Vissulega hefur sjóslysum fækkað gríðarlega. Frá 1985, þegar skólinn var stofnaður, hefur öryggisvitund sjómanna gjörbreyst; búnaður þeirra hefur breyst og skipin hafa breyst. Það er allt til bóta, ef það má orða það þannig. Gamli tíminn er farinn. Sú var tíðin að það var feimnismál að tala um öryggismál við sjómenn. Það þótti ekkert svalt að tala um öryggismál. Í dag þykir þetta bara sjálfsagður hlutur og allir eru meðvitaðir um hversu mikilvægt þetta er og allir eru samtaka í því sem er verið að predika og boða. Vegna þess að þegar upp kemur neyðarstund þá stöndum við öll saman. Allir sjómenn standa saman sem klettar í svona aðstæðum og það er það sem skiptir öllu máli og þess vegna skiptir svo miklu máli að allir taki þátt í æfingum og æfi og æfi.“