„Já, ljótu börnin fá ekki,“ segir Arnþrúður í spjalli við Vísi. Og hún hlær við. Hún segir að þau hjá Útvarpi Sögu hafi treyst á að fá styrk og þetta setji stöðina í rekstrarlegt uppnám.
„Svo kom bara nei“
En á hvaða forsendum var umsókninni hafnað?
„Það komu upp hjá okkur alvarleg veikindi í ágústmánuði,“ segir Arnþrúður og er þar að vísa til veikinda Péturs Gunnlaugssonar, sem er í raun ritstjóri á móti Arnþrúði á Útvarpi Sögu. Þetta var þegar auglýst var eftir umsóknum.
„Við sendum ekki inn fyrr en of seint, tíminn var útrunninn, en eins og segir í lögunum ber að taka tillit til þess þótt umsóknir berist aðeins seinna. Ég var margbúin að hringja í fjölmiðlanefnd og spyrja hvernig þetta yrði því ég vildi hafa vaðið fyrir neðan mig.“
„Svo kom bara nei.“
Það sem Arnþrúði þykir skjóta skökku við er að hún skilaði inn umsókn mánuði eftir að frestur rann út en nefndin tók sér hins vegar einn og hálfan mánuð til að skera úr um að umsóknin hefði verið of seint á ferðinni. Og það jafnvel þó að Arnþrúður telji fullgildar ástæður fyrir því að þeim tókst ekki að vera með sína umsókn innan tiltekins frests.
Ekki af baki dottin þrátt fyrir áfall
„Nei, nei, ég er ekki af baki dottin en þetta kemur sér afskaplega illa fyrir okkur og setur okkur í mikinn rekstrarvanda. Við erum með skuldleysisvottorð frá skattinum, og það er meira en margur getur sagt, og með rekstrarafgang frá síðasta ári upp á 17 milljónir. En það er bara vegna þess að við höfum hagrætt verulega í rekstri.“
Arnþrúður segir að sig vanti minnst fimm manns til að geta staðið að fullri dagskrá en það er langt í land með það. Þó að tekjuafgangur hafi verið þýði það ekki að þau séu milljarðamæringar.
„Það er kreppa alls staðar en við fáum ekki peninga til að nýta góða starfskrafta. Mér finnst þetta öfugsnúið hjá nefndinni sem segist vilja veg einkarekinna miðla sem mestan, þetta gengur þvert á það. Nei, maður á kannski ekki að tala svona en þetta er enn ein tilraunin til að þagga niður í okkur. Mér líður þannig.“