Haukur Heiðar Hauksson, yfirlæknir hjá Læknavaktinni, segir að starfsfólk hafi tekið eftir auknu álagi vegna öndunarfærasýkinga.
„Það er sífellt meiri aðsókn núna síðustu vikurnar og bara sem dæmi þá eru tuttugu prósent fleiri komur í þessari viku heldur en þeir í síðustu og það var ekki beint rólegt hjá okkur í síðustu viku,“ segir Haukur.
Þrátt fyrir aukið álag gangi vel að afgreiða allan fjöldann.
„Það er mikið um öndunarfærasýkingar núna og inflúensan virðist ætla að koma svona frekar snemma í ár eins og hún gerði í fyrra,“ segir hann.
„Þetta er nokkuð óvenjulegt. Síðustu árin hefur þetta verið að byrja að dreifast svona í nóvember, desember en ná alvörutoppi í janúar og febrúar. En í fyrra kom þetta mjög snemma inn, bara í október og nóvember.“
Á sama tíma og inflúensan dreifist um samfélagið hefur Covid-tilfellum einnig fjölgað. Embætti landlæknis segir að fjöldinn sem greinst hefur með Covid bendi til útbreiðslu í samfélaginu.
„Ég hvet líka fólk til að fara í bólusetningu, sérstaklega þeir sem eru veikir fyrir, eru með einvhers konar öndunarfærasjúkdóma eða bara eldra fólk líka sem er það fólk veikist oftast hvað verst af inflúensunni,“ segir Haukur.