Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að lögreglu sé heimilt að halda áfram haldlagningu á farsímum og leikjatölvum í eigu manns sem er til rannsóknar vegna meintra kynferðisbrota. Maðurinn krafðist þess að tækjunum yrði skilað en þeirri kröfu var hafnað.Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tækin við húsleit á heimili mannsins 9. janúar 2026. Um var að ræða tvo farsíma, tvær PlayStation 5 leikjatölvur, eina PlayStation 4 tölvu og Xbox-leikjatölvu. Einnig tók lögregla Acer-fartölvu af honum í febrúar en henni hefur síðan verið skilað.
Meintur kynferðisbrotamaður vildi leikjatölvurnar sínar til baka