Heildarhagnaður Eikar fasteignafélags á fyrstu sex mánuðum ársins nam 3,79 milljörðum króna og leigutekjur þess jukust um 21,3% frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Eikar fasteignafélags.
Félagið er meðal stærstu fasteignafélaga landsins.
Rekstrartekjur Eikar frá 1. janúar til 30. júní námu 7,2 milljörðum og þar af voru leigutekjur 6,3 milljarðar. Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 115 milljónum.
Á öðrum ársfjórðungi gekk félagið frá kaupum á 4.000 fermetra eign við Hádegismóa 8 í Reykjavík og seldi lóð sína að Járnhálsi 4. Eik seldi einnig eignir að Suðurlandsbraut 20 í Reykjavík og íbúðarhúsalóð við Fossveg 3 á Selfossi.
Heildareignir Eikar 30. júní 2026 námu 196 milljörðum króna. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 182 milljarða og eignir til eigin nota námu 5,4 milljörðum.
Á aðalfundi félagsins í apríl var samþykkt að greiða út 3,7 milljarða í arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2025.