Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir að brjóta ítrekað kynferðislega gegn tólf ára fósturdóttur sinni á heimili þeirra á Suðurnesjum. Samkvæmt ákærunni gaf maðurinn stúlkunni slævandi lyf áður en hann braut á henni.
Hann er ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni fyrir að hafa samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna án hennar samþykkis í fjölda skipta á heimili þeirra í apríl og maí á þessu ári.
Gaf stúlkunni lyf áður en hann braut á henni
Samkvæmt ákærunni nýtti maðurinn sér yfirburði sína og aldursmun og notfærði sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga, vegna áhrifa lyfja sem hann gaf henni.
Í ákærunni segir að hann hafi með þessu ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar á sérstaklega sársaukafullan, meiðandi og alvarlegan hátt.
Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Foreldri stúlkunnar krefst einnig, fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar, að manninum verði gert að greiða henni fimm milljónir króna í skaða- og miskabætur.
Maðurinn var handtekinn um miðjan maí og húsleit gerð á heimili hans á Suðurnesjum eftir að barnaverndaryfirvöld vöktu athygli lögreglu á meintum brotum hans. Hann hefur verið í haldi lögreglu síðan. Maðurinn og kona hans hafa verið með nokkur börn í fóstri. Fleiri börn voru í fóstri á heimili þeirra hjóna þegar maðurinn var handtekinn.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun.