Lögregla fær tilkynningar um vasaþjófnað nánast á hverjum degi yfir sumartímann. Erlendir glæpahópar eru í flestum tilvikum að verki, og meðlimir þeirra koma gagngert til að láta greipar sópa.
Á árum áður gat fólk valsað nokkuð áhyggjulaust með bakpoka og veski um vinsælustu ferðamannastaði landsins.
Í sumar hefur lögreglan skráð að jafnaði eina tilkynningu um vasaþjófnað á dag, þótt þær séu suma daga miklu fleiri. Ferðamenn greina frá því að vera skyndilega án kortaveskis, peninga eða annarra verðmæta.
Tilkynningarnar eru iðulega flestar úr miðborg Reykjavíkur, og eins kemur mikið frá fjölsóttustu náttúruperlum Suðurlands. Við Goðafoss og aðra ferðamannastaði á Norðurlandi var vasaþjófnaður nánast óþekktur – fyrr í þessari viku sá lögreglan á Norðurlandi eystra hins vegar ástæðu til að vara ferðafólk við.
Bakpokar og opnar handtöskur eru einna helst það sem þjófarnir vilja komast í – og á stöðum þar sem fólk er að virða fyrir sér náttúruperlur eða önnur kennileiti og ekki að fylgjast með eigum sínum er hættan einna mest.
Ferðamenn frá Asíu og eldra fólk virðist oftar verða fyrir barðinu á þjófunum en aðrir. Lögreglan biður leiðsögumenn og aðra sem eru í samskiptum við ferðamenn að upplýsa fólk um hætturnar og að það verði að passa sig á margmenni þar sem hægt er að laumast í töskur. Fólk sem stoppaði við Goðafoss í dag átti sér einskis ills von og var almennt hissa á því að vasaþjófar væru á ferð um landið.