Bandaríski rapparinn Kanye West, sem gengur undir nafninu Ye, ætlar að vera með tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. Hann verður þar með stærsta vestræni tónlistarmaðurinn til að troða upp í Rússlandi síðan allsherjarinnrás í Úkraínu hófst fyrir fjórum árum.
Tónleikarnir verða 10. og 11. október á Gazprom-leikvanginum sem tekur 70 þúsund manns í sæti. Miðar seldust upp á nokkrum klukkutímum. Þeir ódýrustu kostuðu níu þúsund rúbblur, jafnvirði rúmlega 13 þúsund íslenskra króna og dýrustu miðarnir kostuðu um 160 þúsund þúsund rúbblur, rúmlega 200 þúsund krónur.
Ye hefur markvisst unnið að því síðustu mánuði að endurbyggja ímynd sína. Ýmis ummæli og yfirlýsingar tónlistarmannsins síðustu ár hafa valdið miklu fjaðrafoki og skyggt á tónlistarferilinn. Ye hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma.
Í fyrra gaf hann út lag sem hét Heil Hitler og seldi boli með hakakrossinum á. Í janúar birti West heilsíðuauglýsingu í The Wall Street Journal þar sem hann sagðist hvorki vera nasisti né gyðingahatari heldur sagðist hann elska gyðinga. Hann kenndi geðsjúkdómi og ótilgreindum heilaskaða um hegðun sína.
Lagið Runaway á tónleikum rapparans í Arnhem í Hollandi í sumar.
Ye er á tónleikaferðalagi en hefur þurft að aflýsa fjölda tónleika í Evrópu, meðal annars í Frakklandi, Bretlandi og Ítalíu. Hann átti að koma fram á Wireless-tónlistarhátíðinni í Lundúnum en henni var aflýst eftir að bresk stjórnvöld meinuðu honum að koma til landsins.
Orðrómur hefur lengi verið á kreiki um að tónlistarmaðurinn ætli að halda á tónleika í Rússlandi. Sögusagnirnar fóru síðast á kreik 2024 þegar hann heimsótti landið til að fagna afmæli vinar síns og tískuhönnuðarins Gosha Rubchinskiy.
Það eru þó ekki allir á eitt sáttir með Ye í Rússlandi. Íhaldssamir aðgerðarsinnar hafa í auknum mæli talað fyrir því að slíta alveg tengsl landsins við vestræn menningaráhrif.
Þingmaðurinn Vitaly Milonov lagði til að Ye myndi flytja rússnesk þjóðlög frekar en sín eigin lög.
Aðeins örfáir vestrænir tónlistarmenn hafa haldið tónleika í Rússlandi undanfarin ár, meðal annars Flo Rida og Jason Derulo.