Ráðgátan um náhvalinn skýrð
Skögultönn náhvalsins hefur verið sveipuð dulúð og vakið áhuga í árhundruð. Náhvalir hafa sést bera saman lengdina á skögultönnum sínum andspænis kvendýrum.
Náhvölum er einum dýra gefin bein skögultönn, ein tönn sem getur orðið allt að þrír metrar á lengd og er svo undarleg að hún var seld sem töfrandi einhyrningshorn á miðöldum.
Skögultennurnar hafa heillað vísindamenn allar götur síðan, en þær hafa reynst afar erfiðar í rannsókn þar sem þessir undarlegu, spikfeitir hvalir eyða mestum hluta ævi sinnar undir hafís norðurslóða.
Náhvalir hafa sést við Ísland, en finnast þó sjaldan sunnan við 70 breiddargráðu.
Í dag tilkynnti stór alþjóðlegur hópur vísindamanna að þeir hefðu leyst langvarandi ráðgátu um skögultennurnar: hvernig þær fá sitt einstaka gormlaga en þó örbeina form.
Vinstri vígtönn karldýra náhvala vex í gegnum kjálka þeirra og efri vör og stendur út sem eina skögultönn dýraríkisins. Hægri vígtönn þeirra er falin í höfðinu.
„Ímyndaðu þér að þú þyrftir að hjóla með kústskaft fast á höfðinu,“ sagði Henrik Birkedal, aðalhöfundur rannsóknar í Nature Communications sem lýsir nýju uppgötvuninni.
Þannig …