Reykvíkingur ákærður fyrir göngutúr úti á landi

SiglufjörðurMáttu ekki labba í gegnum göng.
Mynd: Steinninn/Wikipedia
Tveir einstaklingar, annar þeirra Reykvíkingur, hafa verið ákæðir fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 6. júlí 2025 verið fótgangandi á leið sinni í gegnum Héðinsfjarðargöng, frá Ólafsfirði til Siglufjarðar, og með því farið gegn fyrirmælum umferðarmerkja sem banna umferð gangandi vegfaranda í göngunum.
Þess er krafist að þeir verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra er ákærandi í málinu og verður það tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í júní.