Formaður Samtaka smærri útgerða segir það ekki stranda á þeim eða Samtökum smábátaeigenda að halda kjaraviðræðum við Sjómannasambandið áfram. Hann segir sjómenn ekki hafa sóst eftir fundi síðan í fyrravor.
Fréttastofa ræddi í fyrradag við formann Landssambands smábátaeigenda og formann Sjómannasambands Íslands. Sá síðarnefndi sagði að leita þyrfti til ríkissáttasemjara ef ekki tækist að blása lífi í kjaraviðræður sjómanna á smærri bátum.
Auk Landssamtaka smábátaeigenda eiga Samtök smærri útgerða aðild að viðræðunum. Formaður þeirra er Örvar Már Marteinsson.
„Sko í fyrsta lagi þá funduðum við með þeim í ég held að það hafi verið í maí í fyrra og síðan þá höfum við bara verið að bíða eftir því að það verði kallað til annars fundar. Ég tel að það hafi verið á höndum sjómannaforystunnar að kalla eftir öðrum fundi. Við erum og höfum verið alveg boðnir og búnir að halda þessu áfram,“ segir Örvar.
Hann segir viðræðurnar ekki stranda á neinu sérstöku þó hann segi sjómenn hafa sett fram skrítnar kröfur um lífeyrissjóði.
„En samningaviðræður ganga ekki bara út á það að setjast niður og samþykkja kröfur heldur eru samningaviðræður ákveðin leið til að finna flöt sem allir geta sætt sig við.“
Af og frá að deilt sé um fatapening
Þá segir Örvar af og frá að deilt sé um fatapening, eins og formaður Sjómannasambandsins sagði.
„Það er engin ásteytingssteinn hvort við séum að fara að kaupa stígvél eða vettlinga fyrir mannskapinn, það er bara sanngirnisatriði.“
Telur þú ástæðu til að vísa þessu til ríkissáttasemjara á þessu stigi?
„Ég sé enga ástæðu til þess. Við erum alveg boðnir og búnir til að setjast niður og og ræða málin. Það er ekkert það er ekkert mál að semja. Það þarf bara að setjast niður og byrja á því,“ segir Örvar.
„Síðasti fundur, eða þessi eini fundur, hann var að vísu haldinn á á mjög slæmum tíma. Stjórnvöld voru að leggja á okkur stóraukna gjaldtöku, hækkun veiðileyfagjalda, þannig að það var svolítið skrýtinn tími til að setja setjast niður og fara að ræða um aukin útgjöld. En að sjálfsögðu átti að halda áfram.“