Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirEr dómsmálaráðherra.
Mynd: Víkingur
Sex sóttu um embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 24. júní og umsóknarfrestur var til 3. júlí.
Dómsmálaráðuneytið felur nefnd að fara yfir þær umsóknir sem bárust. Hún skilar dómsmálaráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda sem skipar að því loknu í embættið.
Umsækjendur eru:
- Alla Moiseeva, málastjóri
- Eva Sigrún Óskarsdóttir, lögfræðingur
- Guðbjörg Rósa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
- Ína Bzowska Grétarsdóttir, lögfræðingur
- Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, varaformaður
- Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður