Þetta kom fram í ávarpi Kristrúnar á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum sem hófst í morgun. Fundurinn hófst klukkan níu en Kristrún er á fundinum ásamt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Georgi Lárussyni forstjóra Landhelgisgæslunnar.
„Þetta var hörmulegt slys en líka björgunarafrek. Þarna var unnið einstakt þrekvirki við einstaklega og sérlega erfiðar aðstæður. Fjórtán manns var bjargað eftir fjórar klukkustundir í úfnum sjó og svartamyrkri, en þrír skipverjar létust sem er þyngra en tárum taki,“ sagði Kristrún. Hún ávarpaði þjóðina og sagði að á sorgarstund sem þessari þá stöndum við öll saman.
„Við vottum samúð okkar og þökkum þrekvirki viðbragsaðila sem hættu eigin lífi til að bjarga skipverjum á Jökli og þeim verður aldrei fullþakkað. Þjóðin öll finnur til með skipverjum sem lifðu og hugur okkar er hjá aðstandendum þeirra þriggja sjómanna sem létu lífið í gær. Blessuð sé minning þeirra.“
Hún segist hafa fylgst með aðgerðum í stjórnstöð almannavarna í gær. Þar hafi hún orðið vitni að aðdáunarverðri fagmennsku og yfirvegun í mjög erfiðum aðstæðum. Hún hafi rætt við flugmenn þyrlu gæslunnar sem hafi lýst erfiðum aðstæðum og ákvörðunum sem taka hafi þurft með stuttum fyrirvara. Kristrún segir að hetjudáð hafi verið unnin í gær, þjóðin sé þakklát Landhelgisgæslunni. „Einnig er ljóst að skipverjar á Jökli unnu kraftaverk með viðbrögðum sínum og samstöðu, þeir stóðu allir saman og skildu engan eftir.“
Kristrún sagði að það fylli þjóðina alltaf sorg þegar fólk lætur lífið af slysförum en sjóslys snerti sérstaka taug í Íslendingum. Um sé að ræða eitt af mannskæðustu slysum á sjó við Íslandsstrendur á undanförnum áratugum.
„Við skulum haga það hugfast að miðað við aðstæður leit staðan verr út og mannskaðinn hefði orðið mun meiri ef skipverjar hefðu ekki brugðist við með þeim hætti og þeirri samstöðu sem þeir gerðu og viðbragsaðilar hefðu ekki hætt eigin lífi til að koma samborgurum sínum til bjargar á ögurstundu,“ sagði Kristrún.
„Mig langar að þakka viðbragsaðilum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni í landinu, Landsbjörg, fiskiskipunum sem lýstu upp svartan sjó, fundu skipverja ásamt Landhelgisgæslunni, heyrðu í fólki í vatninu, fólk sem var í samtali við skipverja og hélt voninni lifandi. Mig langar að þakka Rauða krossinum, heilbrigðisstofnunum og öðrum í samfélaginu sem eru að hlúa að fólkinu sem á núna sárt að binda.“