Spencer jarl, bróðir Díönu prinsessu, hefur tilkynnt um útgáfu nýrrar bókar um líf hennar sagða frá sjónarhorni hans. Bókin kemur út í Bretlandi í næsta mánuði, 29 árum eftir að hún lést í bílslysi í París.
Vill tjá sig á jákvæðan hátt fyrir hönd systur sinnar
Bókin heitir Svanasöngur: Díana, systir mín. Spencer segist vilja tjá sig fyrir hönd systur sinnar á opinn og jákvæðan hátt. Hann voni að bókin fái fólk til að skilja hver hún hafi verið í raun og veru.
„Einstök, kraftmikil persóna, full af ást, persónutöfrum og sjálfsefa sem gaf allt í lífið og yfirgaf heiminn sem miklu betri stað, þrátt fyrir að yfirgefa sviðið mjög ung,“ sagði Spencer í yfirlýsingu í tilefni af nýju bókinni í dag.
Díana prinsessa lést ásamt unnusta sínum, Dodi Fayed, í bílslysi í París 31. ágúst 1997. Hún hefði orðið 65 ára gömul 1. júlí ef hún hefði lifað.
Spencer jarl sagði að enn og aftur væri hann að drukkna í viðtalsbeiðnum um systur sína. Á næsta ári verða 30 ár liðin frá andláti hennar.
„Þetta hefur sannfært mig um að skrifa niður mínar eigin hugsanir og minningar, í eitt skipti fyrir öll, frekar en að þurfa að lesa skoðanir annarra sem margar eru byggðar á ósannindum sem hafa orðið viðurkennd með tímanum.“
Vill segja sannleikann um Díönu
Markmið bókarinnar sé að segja sannleikann um Díönu frá sjónarhóli bróður hennar, rétt eins og Spencer gerði þegar hann talaði í jarðarför hennar í Westminster Abbey í september 1997.
Hann sagðist vonast til þess að bókin yrði áhugaverð fyrir þá sem þætti enn vænt um minningu Díönu prinsessu.
„Og ég væri himinlifandi ef þau sem eru of ung til að muna eftir henni á blómaskeiði hennar myndu skilja hver hún var í raun og veru, eftir að hafa lesið bókina.“