Tekist verður á um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer 29. ágúst í Austurbæ í kvöld. Fulltrúar andstæðra hreyfinga, Áfram Ísland og Já til að sjá, mætast á málfundi.
Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, þáttastjórnendur hlaðvarpsins Chess after dark, stýra málfundinum. Leifur segir málefnið hafa klofið þjóðina í herðar niður og að mikill heiður sé að fá að halda fundinn.
Birkir segir verkefnið ekki auðvelt. „Það verður þrautinni þyngri fyrir okkur að halda þessu málefnalegu og góðu hér í kvöld en við sjáum til hvað við getum gert,“ segir hann, en þetta er í fyrsta sinn sem fylkingarnar mætast með þessum hætti.
Leifur undirstrikar mikilvægi þess að fylkingarnar geti mæst og veitt hvor annarri aðhald. Vonast Birkir til þess að óákveðnir kjósendur verði einhvers vísari eftir kvöldið.