Mikill viðbúnaður er í miðborg London í dag vegna fyrirhugaðra mótmæla. 4.000 lögreglumenn eru á vakt með brynvarða bíla, hesta, hunda, dróna og þyrlur.
Búist er við að tugir þúsunda leggi leið sína í miðborgina á tvenn mótmæli. Önnur þeirra skipulögðu stuðningsmenn þjóðernissinnans Tommy Robinson. Hin eru til að minnast þess að 78 ár eru liðin frá Nakba, þegar 750.000 Palestínumenn voru hraktir frá heimilum sínum.