Það er dýrara að ganga menntaveginn en margir framhaldsskólanemar búast við. Skólaárið kostar krakkana allt frá tugum upp í hundruð þúsunda.
„Ég var ótrúlega stressaður“
Framhaldsskólarnir hefjast einn af öðrum á næstu dögum. Í Fjölbrautarskólanum við Ármúla hófst skóladagurinn stundvíslega klukkan kortér yfir átta í morgun.
Hvernig er það að vera sestur aftur á skólabekk?
„Það er gaman sko. Mikil stemning og mikið af fólki mikið af nýjum andlitum og eitthvað svona,“ segir Erpur Kári Sigurðsson, nemandi á fyrsta ári í FÁ.
Og þó stemningin hafi verið góð, voru aðrir örlítið stressaðir fyrir fyrsta deginum.
„Ég var ótrúlega stressaður. Aldrei verið svona stressaður áður. Og. Ég bara mætti. Þetta var besta tilfinning sem ég hef einhverntímann upplifað,“ segir Kristján Bergur Da Silva Stefánsson, nýnemi í FÁ.
Aðsókn í framhaldsskóla aldrei meiri
Aðsókn nýnema í framhaldsskóla um allt land var mikil í ár. Fimm þúsund eitt hundrað fimmtíu og tveir nemendur fengu skólavist, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Marta Manúela Estevez Róbertsdóttir, nemandi á fyrsta ári í FÁ, segist ekki hafa hugmynd um hversu mikið hún þurfi að eyða í námið þessa önn.
„Nei, en náttúrulega skólagjald og svoleiðis. Ég man ekki alveg hvað það kostaði. En pabbi og mamma sögðu að ef ég næ öllum áföngunum þá þarf ég ekki að borga.“
„Mig minnir að það hafi verið áttatíu þúsund fyrir vistina og skólagjaldið. Mér finnst það vera á línunni að vera of mikið. Mér finnst að það eigi ekki að kosta svona mikið að fara í menntaskóla,“ segir Hallgrímur Egill Másson, nýnemi í Menntaskólanum á Egilsstöðum.