Panettiere og Brian Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi í nokkur ár. Hann hafði verið sakaður um að beita hana ofbeldi. Hann var ákærður fyrir heimilisofbeldi árið 2020 og varði stuttum tíma í fangelsi, auk þess að vera dæmdur á skilorð til fjögurra ára.
Ekki er talið að dauða hennar hafi borið að með saknæmum hætti en Panettiere hefði orðið 37 ára gömul á föstudaginn. Samkvæmt heimildum TMZ er talið að hún hafi tekið of stóran skammt af lyfseðilsskyldum lyfjum en verið er að rannsaka hvort eitthvað glæpsamlegt gæti hafa átt sér stað.
Sjá einnig: Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi
Blaðamenn AP fréttaveitunnar hafa komið höndum yfir lögregluskýrslu vegna útkallsins til íbúðar leikkonunnar um helgina. Þar er búið að hylma yfir töluvert af upplýsingum en fram kemur að Zach Hickerson, bróðir Brians, talaði fyrstur við lögregluþjóna.
Þá skrifaði lögregluþjónninn sem var fyrstur á vettvang að Zach hefði sýnt miklar tilfinningar á meðan endurlífgunartilraunir voru gerðar. Hann sagði Brian hafa verið rólegri í fyrstu en það hefði breyst þegar búið var að lýsa Panettiere látna.
Lögregluþjónninn skrifaði að ekki hefði verið nein sýnileg ástæða fyrir ástandi leikkonunnar. Krufning hefur ekki leitt neina áverka í ljós, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Reyndi að fyrirgefa ofbeldið
Eins og áður segir sat Hickerson stuttlega í fangelsi árið 2020 fyrir að hafa beitt Panettiere ofbeldi. Í sjálfsævisögu hennar, sem kom út í maí, skrifaði leikkonan að hún hefði viljað að Hickerson verði nægum tíma í fangelsi til að hræða hann en ekki svo löngum að hann yrði verri maður fyrir vikið.
„Ég þarfnaðist þess að hann viðurkenndi mistök sín og breyttist vegna þeirra, en ég vildi ekki valda honum óafturkræfum skaða.“
Þá sagðist hún hafa reynt að fyrirgefa honum ofbeldið.
Eftir að búið var að lýsa Panettiere látna ræddi lögregluþjónninn frekar við þá bræður en búið er að hylma yfir upplýsingarnar um þau samtöl í lögregluskýrslunni. Einnig er búið að hylma yfir upplýsingar um hvaða lyf leikkonan á að hafa tekið.
Panettiere hefur talað um baráttu sína við áfengisfíkn og þunglyndi gegnum árin.