Utanríkisráðuneytið hefur uppfært mat sitt á því hver kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu gæti verið. Matið er birt á vefsíðu stjórnarráðsins.
Ráðuneytið telur að nettóframlag Íslands til ESB gæti verið um 10–15 milljarðar króna árlega, kæmi til aðildar. Uppfærslan felst í því hver kostnaðurinn væri að frádregnum kostnaði við EES-samstarfið.
Í framsetningu sinni 21. júní sagði ráðuneytið að eftir frádrátt EES-gjalda gætu aðildargjöld Íslands verið á bilinu tveir til sjö milljarðar á ári. Ráðuneytið segir nú að að frádregnum kostnaði við EES-samninginn væru þau átta til þrettán milljarðar.
Kostnaður við EES tveir milljarðar, utan samstarfsáætlana
Skýringin á þessu er að í fyrri útreikningum var allur kostnaður við EES-samninginn dreginn frá en ekki þykir rétt að telja greiðslur til sameiginlegra sjóða til kostnaðar.
Beinn kostnaður við rekstur EES-samningsins er átta milljarðar á ári en þar af fara sex milljarðar til sameiginlegra sjóða ESB. Hafa ber í huga að stór hluti þeirrar upphæðar kemur til baka í formi styrkja til vísindarannsókna og atvinnulífsins, svo dæmi sé tekið.
Kostnaður við EES-samstarfið, utan sex milljarða framlagsins til samstarfsáætlana ESB, er tveir milljarðar.
Utanríkisráðuneytið telur enn að raunframlag Íslands til Evrópusambandsins, kæmi til aðildar, yrði á bilinu 10–15 milljarðar. Í mati þess segir þó nú að að frádregnum kostnaði við EES-samninginn gætu þau verið 8–13 milljarðar.