Ísraelsher hefur viðurkennt í fyrsta skipti að hafa skotið á fimm ára stúlku og fjölskyldu hennar á Gaza fyrir tveimur árum. Stúlkan lifði árásina af en lést síðar af sárum sínum.
Sú eina sem lifði af
Hin fimm ára Hind Rajab var ásamt sex úr fjölskyldu sinni á flótta undan árás ísraelskra hermanna í hverfi þeirra í Gazaborg í janúar 2024 þegar skotum rigndi yfir bílinn sem þau voru í.
Litla stúlkan var sú eina sem lifði af en sat föst í bílnum þar sem árásin stóð enn yfir. Henni tókst að komast í símasamband við hjálparsamtökin Rauða hálfmánann í Palestínu.
Símtalið varði í marga klukkutíma og eftir samráð við ísraelska herinn var sjúkrabíll sendur til hennar. Þegar sjúkrabíllinn kom á vettvang varð hann fyrir loftárás og tveir bráðaliðar létust.
Hljóðupptöku af símtalinu sem Hind Rajab átti við Rauða hálfmánann var dreift á netinu. Þar heyrðist hún grátbiðja um hjálp en sambandið slitnaði að lokum við frekari skothríð.
Hún lést síðar af sárum sínum og drápið á henni var fordæmt um allan heim. Kvikmyndin Rödd Hind Rajab sem fjallar um atvikið var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár.
Aukinn þrýstingur á herinn að rannsaka mál
Ísraelsher sagði í tilkynningu í dag að eftir rannsókn á atvikinu verði nú opnuð sakamálarannsókn.
„Vegna meintra mistaka í samhæfingu á ferðum sjúkrabíls Rauða hálfmánans í Palestínu hefur verið ákveðið að hefja sakamálarannsókn á atvikinu af hálfu rannsóknardeildar herlögreglunnar.“
Herinn neitaði fyrst um sinn að hermenn hefðu verið á staðnum en sagði síðar að herlið hefði verið að gera árásir á skotmörk hryðjuverka í hverfinu.
Sameinuðu þjóðirnar vísuðu í morðið á stúlkunni í rannsókn sinni á stríðsglæpum á Gaza. Ísraelsher neitar að hafa framið slíka glæpi.
Herinn hefur verið undir auknum þrýstingi að sýna fram á að hann rannsaki mál sem þessi til að reyna að koma í veg fyrir alþjóðlegar aðgerðir, einkum frá Alþjóðaglæpadómstólnum.
Markmiðið sé að sporna við ásökunum um að herinn hafi framið stríðsglæpi og að hermenn búi við refsileysi.
Réttlæti fyrir öll börn á Gaza
Amma Hind Rajab sagði í símaviðtali við AP-fréttastofuna að rannsókn hersins væri ekki nóg. Hún vill að alþjóðleg nefnd rannsaki drápið á barnabarni sínu og þúsundum annarra barna á Gaza.
„Við viljum réttlæti, ekki aðeins fyrir Hind heldur fyrir öll börn á Gaza.“
Auk morðsins á Rajab ætlar herinn einnig að rannsaka atvik sem varð ári síðar þegar fimmtán hjálparstarfsmenn voru drepnir í loftárás nærri Rafah sem og dráp á starfsfólki World Central Kitchen hjálparsamtakanna fyrir tveimur árum.