Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands hefur verið framarlega í flokki þeirra sem berjast fyrir því að þjóðin hafni því í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst að halda aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið áfram. Athygli hefur vakið í netheimum að Ólafur Ragnar hefur tekið undir með umdeildum manni sem hefur sagst ekkert hafa á móti því að vera kallaður rasisti. Þetta gerði forsetinn fyrrverandi með því að deila færslu mannsins sem gerði sérstaka athugasemd við myndband samtakanna Já til að sjá.
Ólafur Ragnar tekur undir með „kynþáttaraunhyggjumanni“ og hjólar í meðlim Spaugstofunnar