„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
Óvænt úrslit urðu í forvali Demókrataflokksins í Flórída fyrir kosningar til öldungadeildarinnar, þar sem demókratískur sósíalisti vann.
Vinstri armur Demókrataflokksins fagnaði í dag nýjasta óvænta sigri sínum í forvali fyrir kosningar í öldungadeild Bandaríkjaþings í Flórída. Þar með hélt sigurganga uppreisnarmanna áfram í heimaríki Donalds Trumps forseta, þar sem kjósendur höfnuðu nokkrum frambjóðendum repúblikana sem hann studdi í öðrum forvölum.
Angie Nixon, sem er þingmaður í fulltrúadeild þingsins í Flórída, sigraði Alexander Vindman, fyrrverandi embættismann í þjóðaröryggismálum, sem þótti mun sigurstranglegri, í baráttunni um tilnefningu til að keppa fyrir hönd demókrata um sætið sem repúblikanar halda í nóvember. Í sætinu er nú Ashley Moodey, sem situr á digrum sjóðum fyrir kosningabaráttuna, en hún tók sæti utanríkisráðherrans Marcos Rubio þegar hann fór í ríkisstjórn Donalds Trumps.
Um var að ræða forval fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem verða í nóvember. Kosið verður um alla meðlimi fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og þá verður kosið um 34 af 50 embættum ríkisstjóra. Alls verður kosið um 33 af 100 sætum í öldungadeild Bandaríkjaþings. Þar …