Eins hreyfils æfingar- og listflugvél hlekktist á í lendingu á sjötta tímanum þegar nefhjól vélarinnar festist ekki niðri í lendingu.
Óvissustig var boðað klukkan 16:48 vegna tilkynningar frá flugmanni vélarinnar um bilun í lendigarbúnaði.
Lögregla var kölluð út og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi dælubíl á vettvang.
Vélin stöðvaðist á svokölluðum krossi, þar sem tvær flugbrautir mætast. Báðum brautum var lokað í kjölfarið.
Tveir voru um borð í vélinni en engan sakaði.
Þau sem eiga flug til eða frá Reykjavíkurflugvelli í kvöld eru beðin um að fylgjast með á síðu flugvallarins, einhver seinkun gæti orðið.