Forseti, dómari og ICESAVE

Forseti, dómari og ICESAVE

Forseti, dómari og ICESAVE

Forseti, dómari og ICESAVE

Eft­ir að full end­ur­greiðsla vegna Ices­a­ve lá fyr­ir, sömdu ís­lensk stjórn­völd við Breta og Hol­lend­inga um að greiða þeim 20 millj­arða ís­lenskra króna til við­bót­ar við greiðsl­ur þrota­bús­ins.

Fyrrverandi forseti landsins og svissneskur fyrrverandi dómari við EFTA dómstólinn hafa stillt sér upp í forystu gegn því að almenningur fái að kynna sér kosti og galla þess að ganga til fyllra samstarfs við þær þjóðir Evrópu sem reynst hafa þjóðinni vel á síðustu áratugum. Hefur því verið haldið fram að þeir hafi bjargað þjóðinni frá glötun með aðkomu sinni að uppgjöri ICESAVE-reikninga Landsbanka Íslands þótt fyrir löngu hafi verið sýnt fram á haldleysi slíkra staðhæfinga eins og Kristín Á. Guðmundsdóttir benti á í færslu á Facebook nýlega (Kristín um ICESAVE) og Jón Baldvin Hannibalsson fjallaði um í grein á visir.is 14. ágúst.

Í Kjarnanum 2. maí 2016 birti ég grein, Uppgjörið vegna ICESAVE. Efni hennar var alfarið byggt á upplýsingum frá slitastjórn LÍ. Fyrir þá sem draga vilja ályktanir af staðreyndum fremur en órökstuddum fullyrðingum skulu lykiltölur úr því uppgjöri endurteknar:

  • Breski tryggingasjóðurinn yfirtók tryggðar innstæður að fjárhæð 2.340 milljónir sterlingspunda. Hann fékk 2.403 milljónir punda greiddar úr þrotabúi LBI og því til viðbótar 68 milljónir punda frá TIF, samtals 2.471 milljón punda, 131 milljón punda umfram höfuðstól yfirtekinna innstæða.

  • Hollenski seðlabankinn yfirtók tryggðar innstæður að fjárhæð 1.322 milljónir evra. Hann fékk 1.479 milljónir evra greiddar úr þrotabúi LBI og því til viðbótar 46 milljónir evra frá TIF, samtals 1.525 milljónir evra, 204 milljónir evra umfram höfuðstól yfirtekinna innstæða.

Mismunur á kröfum innstæðuhafa og greiðslum þrotabúsins stafar af tvennu. Annars vegar því að kröfur innstæðueigenda sem yfirteknar voru í október 2008 söfnuðu vöxtum til loka kröfufrests í þrotabúið 22. apríl 2009. Þannig fengu Bretar 76 milljón pund og Hollendingar 37 milljón evrur. Hins vegar högnuðust Hollendingar um 119 milljónir evra á gengismun vegna styrkingar krónunnar frá 22.4.2009 til greiðsludags, en Bretar töpuðu um 13 milljónum punda. Greiðslur úr þrotabúinu fylgdu því ferli sem ICESAVE-samningarnir gerðu ráð fyrir að öðru leyti en því að samkvæmt þeim hefði ávöxtunin og gengishagnaðurinn runnið til Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) og nýst til að greiða kostnað og vexti samkvæmt honum.

Samningur TIF um lok deilunnar

Í september 2015, þ.e. eftir að full endurgreiðsla lá fyrir, sömdu íslensk stjórnvöld við Breta og Hollendinga um að greiða þeim 20 milljarða íslenskra króna til viðbótar við greiðslur þrotabúsins. Engar heimildir eru aðgengilegar um efni þessa samnings. Hann hefur ekki verið birtur opinberlega og ekki fengist afhentur þótt eftir hafi verið leitað og engar skýringar hafa verið gefnar á honum aðrar en tilkynning sem birtist á heimasíðu TIF:

„Samningar nást um lok Icesave-deilunnar. Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF), hollenski seðlabankinn (DNB) og breski innstæðutryggingasjóðurinn (FSCS) hafa náð samningum um lokauppgjör krafna sem stafa frá innstæðum sem Landsbanki Íslands hf. (nú LBI hf.) safnaði í útibúum sínum í Amsterdam annars vegar og London hins vegar undir vörumerkinu Icesave. Samningurinn felur í sér að TIF greiddi mótaðilum sínum samtals 20 milljarða íslenskra króna. Fjárhæðin var greidd með hluta þeirra fjármuna sem eru nú þegar til staðar í B-deild TIF. Í B-deild eru vistaðir fjármunir sem að mestu leyti var safnað fyrir bankahrunið í október 2008. Seðlabanki Íslands veitti undanþágu frá gjaldeyrishöftum að því marki sem þurfti til að unnt væri að inna greiðslur af hendi.“

„Þessi ákvörðun er í reynd uppgjöf ráðherranna tveggja í baráttu þeirra og þáverandi forseta gegn því að samið yrði um ICESAVE“

Samningur þessi var að líkum gerður til þess að losna TIF undan málssókn sem Bretar og Hollendingar höfðu hafið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í framhaldi af niðurstöðu EFTA dómstólsins. Látið er líta svo út að um sé að ræða samning sem TIF geri og sé ríkinu óviðkomandi. Svo er þó ekki. Fjármálaráðherra skipar hluta stjórnar TIF og formann stjórnar. Starfsmaður fjármálaráðuneytisins gegndi starfi framkvæmdastjóra sjóðsins. Óhugsandi er að hann hafi samið um svo háa greiðslu, um 30 mrd. kr. að núvirði, án ákvörðunar fjármálaráðherra og með samþykki forsætisráðherra. Þessi ákvörðun er í reynd uppgjöf ráðherranna tveggja í baráttu þeirra og þáverandi forseta gegn því að samið yrði um ICESAVE.

EFTA dómstóllinn hafði byggt sýknun íslenska ríkisins á tæknilegum formsatriðum en ekki efnislegum rökum um réttindi innstæðueigenda og skyldur ríkja. Hann svaraði því ekki hvort efnisleg rök til sektar eða sýknunar hafi verið til staðar. Fróðlegt væri að vita á hvaða rökum íslensk stjórnvöld byggðu ákvörðun sína um að greiða Bretum og Hollendingum 20 mrd. kr. umfram kröfur þeirra í þrotabú LÍ?

Úrskurður EFTA dómstólsins

Umfjöllun mín um úrskurðinn er byggð á erindi Margrétar Einarsdóttur prófessors við HR á málþinginu Hrunið, þið munið í Háskóla Íslands árið 2018.

Það var Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), ekki Bretar eða Hollendingar, sem höfðaði mál fyrir dómstólnum gegn íslenska ríkinu sem ESA áleit að hefði 1) brotið gegn tilskipun ESB 94/19 um innstæðutryggingar því TIF hefði ekki veitt innstæðueigendum raunverulega vernd, 2) mismunað eftir þjóðerni og þar með brotið gegn sömu tilskipun með því að flytja innlendar innstæður úr gamla bankanum í nýja bankann þar sem þær nutu fullrar tryggingar en skilja erlendar innstæður eftir í þrotabúi gamla bankans og 3) brotið gegn 4. gr. EES samningsins með því að mismuna breskum og hollenskum innstæðueigendum gagnvart innlendum. ESA gerði þó ekki kröfu um að erlendar innstæður nytu fullrar verndar eins og þær innlendu en það skipti máli skv. dómnum.

Dómstóllinn sýknaði íslenska ríkið af öllum ásökunum ESA og var sýknunin í þeim öllum byggð á tæknilegum atriðum en ekki á rökum um rétt innstæðueigenda og skyldur íslenska ríkisins gagnvart þeim. Sýknunina af 2) og 3) lið ákærunnar má allt eftir smekk kalla lagatæknilega snilld eða hundalógík. Í fyrra tilvikinu er sýknað vegna þess að innlendu innstæðurnar höfðu verið fluttar í annan banka áður en liðinn var frestur Fjármálaeftirlitsins til að tilkynna formlega að erlendu innlánin væru ótiltæk. Þegar það hafði verið gert voru engin innlend innlán í þrotabúinu og því engin mismunun möguleg! Í síðara tilvikinu segir dómstóllinn að þar sem ESA hefði ekki gert kröfu um að erlendu innlánin nytu fullrar tryggingar í þrotabúinu sé ekki hægt að krefjast þess að þau fái sömu meðferð og þau innlendu sem nutu fullrar tryggingar í nýja bankanum.

Sýknun af fyrsta ákæruatriðinu er einnig lagatæknilegs eðlis en er vegna vankanta á tilskipun EU 94/19 sem kvað á um skyldu ríkja til að koma á stofn innlánatryggingakerfi en sagði ekkert um hvað gera skyldi ef það kerfi væri ófært um að borga tryggingarnar. (Úr þessu var bætt með tilskipun EU 2009/14). Niðurstaða dómsins var því að í tilskipuninni fælist ekki að ríki bæri ábyrgð ef innstæðutryggingakerfið væri ófært um að borga lágmarkstrygginguna.

Í dóminum er tekið fram að eina ákvæði tilskipunar 94/19 sem tæki til þess að tryggingarsjóður gæti ekki innt greiðslur af hendi væri í 6. mgr. 7. gr. hennar en þar væri kveðið á um að innstæðueigendur gætu þá höfðað mál gegn því innlánatryggingakerfi sem í hlut ætti. Það gekk eftir því breski tryggingasjóðurinn og hollenski seðlabankinn, sem handhafar réttinda fyrrum innstæðueigenda, höfðuðu mál á Íslandi gegn TIF eins og að framan greinir.

Synjun forseta

Augljóst er að synjun forseta á staðfestingu laga um ICESAVE-samningana varð ekki til þess að lækka greiðslur úr þjóðarbúinu vegna reikninganna né til að spara ríkissjóði útgjöld. Sýknun EFTA dómstólsins hafði enn fremur engin fjárhagsleg áhrif og önnur áhrif af honum voru lagatæknileg. Það verður hins vegar ekki sagt um önnur áhrif af synjun forseta því hún varð tilefni til átaka sem gegnsýrðu þjóðfélagsumræðuna mánuðum saman og settu svartan blett á störf Alþingis eins og lesa má um í bók Svavars Gestssonar, Það sem sannara reynist, og afhjúpuðu getuleysi Alþingis og pólitískrar stjórnsýslu til að taka á stórum og erfiðum málum af yfirvegun og staðfestu.

Áhrif þessa ástands náðu út fyrir landsteinana og gerðu það að verkum, m.a. vegna skulda og lánakjara, að endurreisn efnahagslífsins eftir kreppuna dróst hið minnsta um 1/2 til 1 ár. Hefur verið áætlað að sá dráttur hafi kostað landið samtals 4-5% af VLF þar til eðlilegu atvinnustigi var náð. Á verðlagi nú er það 200 til 250 mrd. kr.

Þegar öll kurl eru komin til grafar og rykið er sest má sjá að ICESAVE-samningarnir voru sanngjörn og heiðarleg leið út úr þeim skaða sem íslensku bankarnir höfðu valdið 300.000 til 400.000 erlendum sparifjáreigendum. Þeir voru byggðir á viðteknum alþjóðlegum og þjóðlegum reglum og viðmiðunum um uppgjör þrotabúa og dreifðu byrðinni af tjóninu með sanngjörnum hætti á aðila að samningunum. Með synjun forsetans var sviðið hins vegar opnað fyrir upplýsingaóreiðu, lágkúru, þjóðernishroka og óvild sem enn eimir af.


Höfundur er hagfræðingur, fyrrv. ráðuneytistjóri og sat í samninganefnd um ICESAVE
#dómari #forseti #icesave


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27082/forseti-domari-og-icesave/

📰 Aðrar fréttir

4 af 5 stærstu sláturhúsunum sækjast eftir Halal vottun í komandi sláturtíð
📅 19.08.2026 👁️ 0
4 af 5 stærstu sláturhúsunum sækjast eftir Halal vottun í komandi sláturtíð
Frá árinu 2010 hafa sláturhús á Íslandi sóst eftir svokallaðri Halal-vottun á lambakjöt. Fjögur af fimm stærstu sláturhúsum landsins ætla að sækjast e...
Fjár­mála­ráð­herra og vinnu­markaðurinn bregðast við vaxta­hækkun - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Fjár­mála­ráð­herra og vinnu­markaðurinn bregðast við vaxta­hækkun - Vísir
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mætir í fréttasett og svarar fyrir viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Síðar í fréttatímanum mæta Þorsteinn Víglundss...
Flugdólgur olli því að flugi var aflýst - „Það má ekki kalla neinn kuntu í dag“
📅 19.08.2026 👁️ 0
Flugdólgur olli því að flugi var aflýst - „Það má ekki kalla neinn kuntu í dag“
Flugdólgur sem olli því að flugi frá Manchester til Tyrklands var aflýst er í vondum málum. Flugfélagið Jet2 vill fá himinháar skaðabætur frá honum.Ei...
SVÞ og netáfengisverslanir skora á Al­þingi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
SVÞ og netáfengisverslanir skora á Al­þingi - Vísir
Samtökin og netverslanir með áfengi standa að heimasíðunni Valfrelsi.is. „upplýsingasíða um hvernig áfengissölu er háttað á Íslandi og hvernig megi sk...
Canada and US say they are finalising a trade deal, but details remain murky
📅 19.08.2026 👁️ 0
Canada and US say they are finalising a trade deal, but details remain murky
Prime Minister Carney hailed "significant progress" in trade talks as the two countries seek to hammer out final details ahead of a new weekend tariff...
Ráðuneytið uppfærir mat á framlagi til ESB við aðild
📅 19.08.2026 👁️ 0
Ráðuneytið uppfærir mat á framlagi til ESB við aðild
Utanríkisráðuneytið hefur uppfært mat sitt á því hver kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu gæti verið. Matið er birt á vefsíðu stjórnarráðsins. ...
Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir
Greint var frá því í gær að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu, til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra mun...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir meintum Kársnesmorðingjum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir meintum Kársnesmorðingjum - Vísir
E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Tveir menn voru handteknir vegna drápsins í tveimur Evrópu...
Hætta notkun andlitsgreiningar eftir að viðskiptavinur var ranglega sakaður um þjófnað
📅 19.08.2026 👁️ 0
Hætta notkun andlitsgreiningar eftir að viðskiptavinur var ranglega sakaður um þjófnað
Matt Arnold var ranglega sakaður um þjófnað í stórmarkaðnum Sainsbury's í Lundúnum eftir að gervigreind gerði mistök. Honum var vísað út úr versluninn...
Students wait for GCSE and BTec grades as app launches for 750 schools in England
📅 19.08.2026 👁️ 0
Students wait for GCSE and BTec grades as app launches for 750 schools in England
Some pupils in England will be able to see their grades on their phones from 11:00 BST on Thursday.
Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa banað öðrum manni á Kársnesi 9. ágúst hefur verið framlengt fram í næstu viku.Þetta stað...
Skora á Alþingi að skýra ramma um áfengissölu
📅 19.08.2026 👁️ 0
Skora á Alþingi að skýra ramma um áfengissölu
Samtök verslunar og þjónustu ásamt sjálfstæðum sérvöruverslunum með áfengi skora á Alþingismenn að setja skýran lagaramma um vefverslun með áfengi. Þr...
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Það er verið að blekkja fólk vísvitandi
📅 19.08.2026 👁️ 0
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Það er verið að blekkja fólk vísvitandi
Það er einkennilegt að halda því fram að atkvæðagreiðslan 29. ágúst muni soga okkur inn í Evrópusambandið ef við segjum já. Þátt í þessu taka menn, se...
Kærastinn var á staðnum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
Kærastinn var á staðnum - Vísir
Panettiere og Brian Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi í nokkur ár. Hann hafði verið sakaður um að beita hana ofbeldi. Hann var ákærður fyrir h...
Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum - Vísir
„Þessi meistari var á Reynimelnum í gærkvöldi, um klukkan sex,“ segir Arnar Már Jónsmundsson íþróttapródúsent en hann sagðist ansi viss um að fuglinn ...
Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Eistlandi​
📅 19.08.2026 👁️ 0
Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Eistlandi​
Þriggja daga opinber heimsókn forsetahjónanna til Eistlands hófst í morgun.Móttökuathöfn var á Ráðhústorginu í Tallinn og að henni lokinni gengu Halla...
Gæti séð fyrir sér að kjara­samningar haldi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gæti séð fyrir sér að kjara­samningar haldi - Vísir
„Þessi stýrivaxtahækkun upp í átta prósent er klárlega endanleg sönnun þess að meginmarkmið samninganna sem við undirrituðum 2024 hafa ekki náðst, og ...
OpenAI dregur úr þjálfun eftir að gervigreindarlíkön gerðu tölvuárás óumbeðin
📅 19.08.2026 👁️ 0
OpenAI dregur úr þjálfun eftir að gervigreindarlíkön gerðu tölvuárás óumbeðin
OpenAI segist hafa dregið úr þjálfun þróuðustu gervigreindarlíkana sinna til að bæta öryggi. Gervigreindarlíkön fyrirtækisins gerðu tölvuárás í sumar,...
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
📅 19.08.2026 👁️ 1
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída Óvænt úr­slit urðu í for­vali Demó­krata­flokks­ins í Flórída fyr­ir kosn­ing­ar til öld­unga­deild­ar­inn­ar, þar...
Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur - Vísir
Enginn fundur hefur verið skipulagður en Trump hefur lagt til við sitt fólk að hann gæti hitt Kim þegar hann fer næst til Asíu, sem gæti verið í nóvem...
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana
📅 19.08.2026 👁️ 0
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana Fréttin19. ágúst 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, SkólamálLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar...
Móðir freistaði þess að fá ákvörðun TR um meðlagsgreiðslur hnekkt - Sakaði barnsföður um hefndaraðgerðir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Móðir freistaði þess að fá ákvörðun TR um meðlagsgreiðslur hnekkt - Sakaði barnsföður um hefndaraðgerðir
Faðir stúlku leitaði í mars til Tryggingastofnunar ríkisins og óskaði eftir því að stofnunin hefði milligöngu um meðlagsgreiðslur með dóttur hans. Móð...
„Óútreiknanlegt“ ungmenni í miklum vanda - Veittist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar og iðrast einskis
📅 19.08.2026 👁️ 0
„Óútreiknanlegt“ ungmenni í miklum vanda - Veittist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar og iðrast einskis
Ungum manni hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 9. september, en hann var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 5. apríl sl. Er...
Þor­steinn Leó orðinn pabbi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Þor­steinn Leó orðinn pabbi - Vísir
Parið greindi frá tíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Litli prinsinn okkar kom í heiminn þann 16. ágúst,“ segir í færslunni. J...
Lentu geim­flaug í fyrsta sinn - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Lentu geim­flaug í fyrsta sinn - Vísir
Eldflaugin er framleidd af fyrirtækinu LandSpace. Kínverjum hafði áður tekist að grípa fyrsta þrep Zhuque-3 eldflaugarinnar á hafi úti en það tókst þe...
Israel opens up tenders for controversial West Bank settlement project
📅 19.08.2026 👁️ 0
Israel opens up tenders for controversial West Bank settlement project
Plans to build on the so-called E1 area - east of Jerusalem - have long been internationally condemned and would in effect divide the occupied West Ba...
Israel opens up bids for highly-sensitive West Bank settlement project
📅 19.08.2026 👁️ 0
Israel opens up bids for highly-sensitive West Bank settlement project
Israeli plans to build on the area east of Jerusalem - which would divide the occupied West Bank in two - have long been internationally condemned.
Salmonella outbreak: What we know so far
📅 19.08.2026 👁️ 0
Salmonella outbreak: What we know so far
Hundreds have fallen ill with salmonella infections in an outbreak linked to imported eggs.
Sagði skilið við Bylgjuna eftir spennandi atvinnutilboð
📅 19.08.2026 👁️ 0
Sagði skilið við Bylgjuna eftir spennandi atvinnutilboð
Kristján Kristjánsson segist ekki ætla að verja dögunum sínum úti á golfvelli eftir að hafa tilkynnt um starfslok á Bylgjunni, heldur sé hann á leiðin...
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
📅 19.08.2026 👁️ 0
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu „Þú ert allt sem skipt­ir mig máli,“ sagði að­stoð­ar­kona Banda­ríkja­for­seta við hann. „...
Six injured after multi-vehicle collision in Adeje
📅 19.08.2026 👁️ 0
Six injured after multi-vehicle collision in Adeje
Six people, including two children aged two and 11, have been injured in a multi-vehicle collision on the TF-1 motorway in Tenerife.The accident happe...
'Incredible': SpaceX rocket spotted off Christmas Island coast
📅 19.08.2026 👁️ 0
'Incredible': SpaceX rocket spotted off Christmas Island coast
A SpaceX rocket that blasted off from Texas in July and crashed into the Indian Ocean hadn't been seen since - but now Christmas Island residents say ...
Orðið á götunni: Hnífjafn slagur og nei-ið beitir blekkingum– samt vex já-sinnum fiskur um hrygg
📅 19.08.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Hnífjafn slagur og nei-ið beitir blekkingum– samt vex já-sinnum fiskur um hrygg
Hiti færist nú í baráttuna um framhald aðildarviðræðna við ESB sem kosið verður um laugardaginn 29. ágúst. Auglýsingar birtast nú hér og hvar frá báðu...
Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu - Vísir
Aðeins tæpir 1,8 milljarða kílómetra skilja að stjörnuna S301 og risasvartholið Sagittarius A* í miðju Vetrarbrautarinnar okkar. Það er aðeins um fimm...
Lögreglan rannsakar hvort skotvopn hafi verið dregið upp í slagsmálum í Hafnarfirði í nótt - „Wtf er drengurinn með byssu?“
📅 19.08.2026 👁️ 1
Lögreglan rannsakar hvort skotvopn hafi verið dregið upp í slagsmálum í Hafnarfirði í nótt - „Wtf er drengurinn með byssu?“
Lögreglan í Hafnarfirði er með til skoðunar mál sem upp kom í Holtinu í nótt. Þrír drengir slógust og einn þeirra viritist draga upp skammbyssu og ota...
Hafi byrlað tólf ára fóstur­dóttur og nauðgað í­trekað - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Hafi byrlað tólf ára fóstur­dóttur og nauðgað í­trekað - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag, segir að maðurinn hafi, á sameiginlegu heimili þeirra [á Suðurnesjum] án samþyk...
Vilja banna frjáls ferða­lög ísraelskra ferða­manna á Ís­landi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Vilja banna frjáls ferða­lög ísraelskra ferða­manna á Ís­landi - Vísir
Fyrir hönd sniðgönguhreyfingarinnar á Íslandi skrifa undir áskorunina þær Elsa María Blöndal, Katrín Harðardóttir, Margrét Kristín Blöndal og Sigurlau...
„Má ætla“ að aðild hefði ekki áhrif á veiðiheimildir staðbundinna fiskstofna
📅 19.08.2026 👁️ 0
„Má ætla“ að aðild hefði ekki áhrif á veiðiheimildir staðbundinna fiskstofna
Evrópusambandið hefur ekki almenna valdheimild til að mæla fyrir um eignarhald, notkun eða forræði yfir náttúruauðlindum aðildarríkja. Ráðstafanir rík...
Versluðu sígarettur af rúss­neskum sjó­mönnum: „Þetta var bara eins og gull“ - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Versluðu sígarettur af rúss­neskum sjó­mönnum: „Þetta var bara eins og gull“ - Vísir
Andri og Helgi eru fyrstu viðmælendur sex þátta seríunnar Milli vina þar sem tveir einstaklingar, sem tengjast persónulega, eiga einlægt samtal í hlýl...
Þurfa fjármagn svo Valaskjálf verði áfram samkomusalur
📅 19.08.2026 👁️ 0
Þurfa fjármagn svo Valaskjálf verði áfram samkomusalur
Óvíst er að fleiri dansleikir, tónleikar eða leiksýningar verði í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum. Eigendurnir íhuga að breyta salnum í gisti...
Meta gerði börn vísvitandi háð Instagram og Facebook
📅 19.08.2026 👁️ 0
Meta gerði börn vísvitandi háð Instagram og Facebook
Tæknirisinn Meta gerði börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram, að sögn fulltrúa um 30 ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu. Rét...
„Mig langaði bara að komast burt frá þessu“
📅 19.08.2026 👁️ 0
„Mig langaði bara að komast burt frá þessu“
Bróðir Andra Más Mortensen Birgissonar gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu. Hann sagðist ekki hafa beitt brotaþola í málinu ofbe...
Gesta­fjöldi fjór­faldaðist á Kveld­úlfi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gesta­fjöldi fjór­faldaðist á Kveld­úlfi - Vísir
„Gestafjöldi var fjórfaldur á við í fyrra og fór allt vel fram. Við vorum alveg fáránlega heppin með veður, sólin skein allan tímann og fjörðurinn ska...
Meintur Kárs­nesmorðingi hand­tekinn í Barcelona - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Meintur Kárs­nesmorðingi hand­tekinn í Barcelona - Vísir
Tveir menn voru handteknir vegna drápsins í tveimur Evrópuríkjum í síðustu viku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi ekki frá því hvar þeir hefðu v...
Train track defect found before Lewes derailment, report says
📅 19.08.2026 👁️ 1
Train track defect found before Lewes derailment, report says
Initial findings from an RAIB investigation show an "irregularity" at the site near Lewes.
Átakanleg játning mótleikara Hayden: Reykti heróín á frumsýningarkvöldinu
📅 19.08.2026 👁️ 1
Átakanleg játning mótleikara Hayden: Reykti heróín á frumsýningarkvöldinu
Ethan Suplee, sem lék ásamt Hayden Panettiere í kvikmyndinni Remember the Titans, minnist leikkonunnar með áhrifamiklum orðum. Hann opnar sig um leið ...
Kristileg hljómsveit lögsækir Netflix vegna Kpop Demon Hunters
📅 19.08.2026 👁️ 1
Kristileg hljómsveit lögsækir Netflix vegna Kpop Demon Hunters
Kristilega hljómsveitin Demon Hunter hefur lögsótt streymisveituna Netflix vegna myndarinnar Kpop Demon Hunters. Að sögn lögmanna sveitarinnar er veri...
Harmageddon | Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB
📅 19.08.2026 👁️ 1
Harmageddon | Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB
HarmageddonÞví er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvor...
Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni
📅 19.08.2026 👁️ 1
Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni
Félag spænskra lögreglumanna, JUPOL, segir mikinn fjölda kynferðisbrota hafa átt sér stað í Ceuta eftir innrásina í borgina þar sem tugþúsundir manna ...
Ragnar Þór svarar Hauki fullum hálsi og vill að hann biðjist afsökunar
📅 19.08.2026 👁️ 1
Ragnar Þór svarar Hauki fullum hálsi og vill að hann biðjist afsökunar
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrum formaður Kennarasambandsins, segir það óboðlegt að krefjast afsökunarbeiðni frá grunnskólakennurum landsins ve...