Lögreglan í Hafnarfirði er með til skoðunar mál sem upp kom í Holtinu í nótt. Þrír drengir slógust og einn þeirra viritist draga upp skammbyssu og ota að öðrum. Myndband náðist af atvikinu og er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum.„Við erum að skoða þetta,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Hafnarfirði. Tilkynning barst um máli um klukkan 2 í nótt.
Lögreglan rannsakar hvort skotvopn hafi verið dregið upp í slagsmálum í Hafnarfirði í nótt - „Wtf er drengurinn með byssu?“